Tenging við Flóttamannaveg, hvað svo?

Branches

Fyrir liggur vegtenging úr Urriðaholti inn á Flóttamannaveg, sem er jákvætt skref þar sem vegtengingin bætir aðgengi að hverfinu og öryggi fæst með fleiri en einni leið. Nokkuð sem verið hefur vilji íbúa hverfisins í áraraðir. Hins vegar er mikilvægt að gera sér grein fyrir að nýjar vegtengingar geta breytt umferðarmynstri með tilheyrandi áhrifum á íbúahverfi, enda er umferð oft eins og á sem finnur sér alltaf farveg eftir aðstæðum. Þótt flestir séu sammála um að tengingin sé jákvætt skref skipta útfærslan, heildarsýn verkefnisins og áhrif þess á umhverfið og mannlífið í hverfinu mestu máli.

Urriðaholtið er skipulagt sem vistvottað íbúðahverfi þar sem áhersla er lögð á rólegt, fjölskylduvænt og umhverfisvænt umhverfi, með Urriðaholtsstræti sem tengibraut en aðrar götur hannaðar miðað við 30 km hámarkshraða, með tilheyrandi hraðahindrunum og þrengingum. Slík hverfi eru almennt ekki hönnuð til að taka við mikilli gegnumstreymisumferð. Það er vel þekkt í skipulags- og samgöngufræðum að þegar nýjar tengingar stytta eða einfalda leiðir milli stærri umferðarpunkta getur hluti umferðar leitað inn í íbúðagötur, sérstaklega á annatímum eða þegar tafir myndast á stofnvegum. Ökumenn velja þá leið sem er hagkvæmust hverju sinni og sýnir reynslan að það þarf ekki nema hluta umferðar til að breyta eðli íbúðahverfis.

Þetta undirstrikar þá grundvallarreglu að umferð leitar eins og kostur er stystu leiðar, nema umferðarskipulag móti aðstæður með öðrum hætti eins og við höfum t.d. í Akrahverfinu, þar sem áhersla var á sínum tíma lögð á að greina stofnvegi frá íbúðagötum og takmarka gegnumakstur.

Lykilatriðið í þessu máli er ekki eingöngu tengingin sjálf, heldur heildaráhrif á Urriðaholtið sem íbúðahverfi og ekki síst staða og uppbygging Flóttamannavegar, sem öllum er ljóst að er vegur sem þolir nú þegar ákaflega illa vaxandi umferðarþunga sem í dag er 5.000 bílar á sólarhring. Forgangsverkefni hlýtur því að vera að tryggja að vegurinn sé öruggur og ekki síður fær um að taka við þeirri umferð sem honum er ætlað að bera með nýrri tengingu inn á hann. Ef það tekst ekki er hætta á að umferð dreifist inn í íbúðahverfi, með tilheyrandi áhrifum á öryggi og lífsgæði.

Nauðsynleg hagsmunagæsla gagnvart Vegagerðinni

Í þessu samhengi er mikilvægt að minna á hlutverk sveitarfélagsins sem hagsmunagæsluaðili gagnvart öðrum hagaðilum til hagsbóta fyrir íbúa þess. Flóttamannavegurinn er á forræði Vegagerðarinnar, en hins vegar ber Garðabæ að gæta hagsmuna sinna íbúa og beita nauðsynlegri hagsmunagæslu til að sinna þeirri skyldu sinni. Flóttamannavegur þarf að komast á samgönguáætlun sem allra fyrst og útfærsla hans taka mið af viðkvæmu umhverfi í helsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins þar sem lausnir verði mótaðar í samráði við íbúa.

Tækifærið er fyrir hendi. Með skýrri sýn, öflugri stefnumótun og vandaðri undirbúningsvinnu er unnt að tryggja að ný tenging verði raunveruleg bót fyrir bæinn í heild. Án slíkrar nálgunar er hætta á að hún verði upphaf að nýjum áskorunum og hættum í umferðinni.

Hlynur Bæringsson

Höfundur er oddviti Framsóknar í Garðabæ.

Greinin birtist í Morgunblaðinu 14. maí