
Í miðjum Garðabæ er rými sem hefur alla burði til að verða hjarta mannlífs í bænum – yfirbyggða torgið við Garðatorg 7. Margir hafa gengið þar í gegn en færri hafa stoppað og velt fyrir sér hvað þetta rými gæti í raun orðið. Stundum þarf nefnilega ekki stórar framkvæmdir til að breyta miklu. Stundum duga litlar, skynsamar breytingar til að skapa mannbætandi líf.
Ég er þokkalaega að mér í þessum málaflokki eftir áratuga starf við viðburða- og mannlífseflingu, ekki aðeins við framkvæmd hundruð viðburða sem ég staðið fyrir sjálfur heldur líka við þróun þeirra og uppbyggingu heilla viðburðadagatala og bæjarhátíða. Sem forstöðumaður Höfuðborgarstofu bar ég ábyrgð á nokkrum stærstu mannamótum höfuðborgarinnar; Menningarnótt, Jólaviðburðum í borginni og Vetrarhátíð með Safnanótt og Sundlauganótt.
Síðar tók ég þátt í vinnu fyrir Hafnarfjörð við þróun jólahalds bæjarins á árunum 2019 til 2022, þar sem markvisst var unnið að því að byggja upp viðburði og hefðir í kringum Jólaþorpið. Þá hugsaði ég oft „hvað væri maður til í að gera til að byggja yfir þessa viðburði“ þegar norðargarrinn barði á gest- unum. Þess vegna horfi ég á Garðatorg 7 með öðrum augum en margir. Ég sé ekki risavaxið kalt gróðurhús – ég sé vettvang fyrir mannlíf, fjölskyldur, litla viðburði, tónlist, markaði, jólaviðburði, sumardagskrá og alls konar félagslega samveru.
Með tiltölulega einföldum aðgerðum eins og bættri hljóðvist, hlýrri umgjörð, hiturum og betri aðstöðu væri hægt að gera torgið að notalegum samkomustað allt árið um kring. Þetta eru hvorki stórar eða dýrar framkvæmdir og eðlilega í samráði við íbúa og rekstaraðila. Reynslan frá öðrum bæjarfélögum sýnir að þegar svona rými fá hlutverk og líf þá eflist mannlíf, verslun og þjónusta og bæjarfélagið fær sterkari ímynd og meiri sérstöðu. Garðabær hefur alla burði til að vera leiðandi í svona uppbyggingu – við eigum rýmið nú þegar. Við þurfum bara að nýta það.
Ég hef lengi talað fyrir því að Garðatorg 7 verði þróað markvisst sem samkomu- og viðburðatorg fyrir bæinn. Það væri tiltölulega ódýr framkvæmd en gæti haft mjög jákvæð áhrif á mannlíf í Garðabæ.
Og til að setja markið – þá er hér með lofað að ef við náum að hreyfa þetta mál áfram og blása lífi í torgið þá munu Tenórarnir þrír syngja á Garðatorgi á komandi Þorláks-messu. Það væri ekki slæm byrjun á nýrri hefð í hjarta Garðabæjar.
Þetta snýst um Garðabæ
Einar Bárðarson
Höfundur skipar 4. sæti á lista Framsóknar í Garðabæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.


