Það er ekki tilviljun þegar vel gengur – það er samkvæmt áætlun
Branches

Eftir síðustu kosningar undirrituðum við í Framsókn metnaðarfullan meirihlutasamning við Sjálfstæðisflokkinn. En það er ekki nóg að setja orð á blað. Það þarf að leggja á sig vinnu til að ná árangri og strax í upphafi kjörtímabilsins skiptum við samningnum upp í verkþætti og hófumst handa.
Fjögur ár eru í senn stuttur og langur tími. En við skulum fara yfir það sem við höfum áorkað á þessum tíma. Við kláruðum að hnýta lausa enda varðandi sameiningu sveitarfélagsins og horfum björtum augum til framtíðar í samhentri einingu.
Rekstur sveitarfélagsins gengur vel. Við settum upp tíu ára fjárfestingaráætlun, sem er uppfærð árlega til að missa ekki sjónar af markmiðum okkar í því langhlaupi sem uppbygging mannvirkja sveitarfélagsins er. Umfangsmiklar og þarfar endurbætur hafa verið gerðar á Fjarðarborg á Borgarfirði og Herðubreið á Seyðisfirði, húsnæði sem er nærsamfélaginu mikilvægt. Einnig er nú unnið að viðbyggingu við Safnahúsið á Egilsstöðum og stefnt er að útboði fyrir nýjan Seyðisfjarðarskóla á næstu vikum.
Nýtt aðalskipulag er á lokametrunum og lóðaframboð er nægt í öllum byggðakjörnum enda má sjá gríðarlega uppbyggingu íbúðarhúsnæðis um allt sveitarfélagið. Samfélagsverkefni heimastjórna hafa notið mikilla vinsælda og eru samfélögunum okkar mikilvæg því oft geta litlu framkvæmdirnar jafnvel glatt okkur meira en þær stóru.
Við viljum vinna vel og skipulega að málunum. Sett hefur verið metnaðarfull menningarstefna og fjölskyldustefna fyrir sveitarfélagið og einnig ný eigendastefna fyrir HEF veitur. Við höfum aukið stuðning við íþróttastarf, til dæmis með því að fjármagna nýtt starf framkvæmdastjóra Hattar. Við komum á laggirnar Frístundaþjónustunni Sólinni og í Múlaþingi komast 12 mánaða börn inn á leikskóla.
Við göngum stolt til kosninga því við skilum góðu búi til næstu sveitarstjórnar. Við lýsum okkur tilbúin að halda áfram okkar góða starfi og vonum að kosningaúrslitin endurspegli ánægju íbúa með stöðu sveitarfélagsins. Við erum með stefnuskrá sem við treystum okkur til að framfylgja þetta næsta kjörtímabil. Þannig viljum við vinna hlutina. Við setjum okkur raunhæf markmið, við gerum verkáætlun, við brettum upp ermar og framkvæmum.
Það eina sem varpar skugga á árangur þessa kjörtímabil er hvernig ríkisstjórnin hefur kosið að ganga fram í samgöngumálum. Það er okkar langstærsta áskorun til lengri tíma og hvernig til tekst í þessari baráttu mun hafa mikil áhrif á byggðaþróun þessa svæðis. Við í Framsókn höfum beitt okkur með öllum tiltækum ráðum til að koma Fjarðarheiðargöngum aftur á blað og Öxi framar í samgönguáætlun. Öflug hagsmunagæsla gagnvart ríkisvaldinu, með vönduðum og rökföstum málflutningi, verður eitt mikilvægasta hlutverk nýrrar sveitarstjórnar. Þó að illa horfi nú má ekki leggja árar í bát og við í Framsókn munum ekki gefast upp þótt móti blási.
Við höfum sýnt hvað við getum og við erum reiðubúin að halda áfram. Vinnum þetta saman, setjum X við B á kjördag.
Jónína Brynjólfsdóttir
Höfundur er oddviti Framsóknarflokksins í Múlaþingi



