Það sem við vökvum, það vex

Branches

Hlutverk og verkefni sveitarfélaga eru ótal mörg, en skólamálin eru meðal þeirra mikilvægustu. Ef við viljum byggja upp sterkt samfélag til framtíðar þurfum við að tryggja börnum góðan skóla, þar sem þau fá bæði stuðning og tækifæri til að þroskast. 

Fjarðabyggð rekur fimm grunnskóla, leikskóla og Tónlistarskóla Fjarðabyggðar. Saman mynda þessir skólar öflugt menntakerfi sem skiptir miklu máli fyrir einstaklinga og fjölskyldur um allt sveitarfélagið. Við viljum að öll börn hafi aðgang að góðri kennslu, sérfræðiþjónustu og að þörfum þeirra sé mætt óháð búsetu.

Þrátt fyrir að einkunnir og námsárangur séu mikilvæg, þá snýst skólaganga barna um mikið meira. Mikilvægt er að skapa aðstæður sem börnum líður vel í, stað þar sem þau finna fyrir virðingu, öryggi og að þeim sé mætt með skilningi og stuðningi. 

Góð samskipti, markvissar forvarnir og áhersla á geðheilsu skipta þar miklu máli. Partur af því að bera virðingu fyrir hvert öðru er að horfa til þarfa einstaklingsins en ekki bara hvaða þjónustu hann á rétt á. Við þurfum að grípa nemendur um leið og þeir þurfa á þjónustunni að halda og reyna eftir fremsta megni að beita snemmtækri íhlutun.

Til þess að það sé hægt þá þurfum við að vera með öflugt fagfólk innan skólanna sem hefur þekkingu og færni til að grípa inn í eins fljótt og auðið er. Kennarar, leikskólakennarar, þroskaþjálfar, stuðningsfulltrúar og annað starfsfólk skólanna halda uppi starfi sem skiptir sköpum fyrir framtíð barnanna okkar. Ef við viljum laða að og halda í starfsfólk verðum við að bjóða upp á góð starfsskilyrði, stuðning og raunhæf tækifæri til starfsþróunar.

Í skólum Fjarðabyggðar er margt sem er til fyrirmyndar og þar er alla daga unnið gott starf. Það þekkir undirrituð af eigin raun enda hefur hún starfað í þremur af skólum Fjarðabyggðar, en lengi má gott bæta. Eitt af því sem við sem samfélag getum gert er að halda vel á lofti því sem er vel gert og er eftirsóknarvert hjá okkur. Tryggjum að samfélagið og skólarnir okkar verði eftirsóknarverðir kostir fyrir öflugt fagfólk og sköpum þannig sterkari skóla til framtíðar. Löðum til okkar fólk sem kýs að taka þátt í uppbyggingu öflugs sveitarfélags.

Þegar sveitarfélag ákveður að fjárfesta í skólum og marka skýra sýn og stefnu þá er það í raun fjárfesting til framtíðar. Við viljum gera skóla Fjarðabyggðar enn öflugri og með því Fjarðabyggð að enn betri stað fyrir börn til að alast upp á, fyrir fjölskyldur til að setjast að og fyrir samfélagið allt til að dafna. Það sem við hlúum að og ræktum það mun dafna. Við í Framsókn Fjarðabyggð óskum eftir þínum stuðningi til þess að fá áframhaldandi tækifæri til að fjölga fagfólki við skólana og gera góða skóla enn betri.

Sigrún Eva Grétarsdóttir

Höfundur er náms- og starfsráðgjafi og situr í 7. sæti á lista Framsóknar í Fjarðabyggð

Greinin á austurfrett.is