Þegar skipulagið lagar sig að framkvæmdinni

Branches

Byggingarleyfi fyrir veislusal fyrir allt að 105 gesti við Breiðabólstaðatjörn fór í gegnum þrjú stjórnstig á innan við tveimur vikum. Á engu þeirra var svarað spurningunni um hvort skipulagið heimili starfsemina.

Í sumar hafði hópur íbúa á Norðurnesi samband við okkur í Framsókn og hvatti okkur til taka málið upp í skipulagsnefnd. Það gerðum við, og þess vegna skrifum við þessa grein.

Umsóknin var kynnt nágrönnum frá lokum júní og fimm erindi bárust. Í fjórum þeirra lýsti fólk reynslu af hávaða frá starfsemi sem þegar hefur farið fram í húsinu.

Við í Framsókn erum ekki á móti veitingarekstri þarna. Slík starfsemi getur farið vel á þessum stað sé rétt að henni staðið. En hún þarf að standa á traustum grunni og samkvæmt gildandi skipulagi.

Málið snýst í raun um eitt atriði, og það má útskýra án lagamáls.

Þegar byggja á hús eða breyta notkun þess þarf venjulega deiliskipulag, nákvæma áætlun fyrir svæðið. Til er flýtileið: ef framkvæmdin fellur augljóslega að því sem aðalskipulag bæjarins segir þegar um svæðið, má sleppa deiliskipulaginu og kynna málið einfaldlega fyrir nágrönnum. Þetta er undantekning frá þeirri meginreglu skipulagslaga að gera skuli deiliskipulag fyrir svæði þar sem framkvæmdir eru fyrirhugaðar.

Lóðin þar sem Hlaðan stendur er í aðalskipulaginu skilgreind sem opið svæði. Það er flokkur fyrir útivist: göngustíga, bekki, áningarstaði, og þá þjónustu sem tengist því að fólk sé úti á ferli.

Meirihlutinn taldi flýtileiðina færa og studdist við eina setningu sem bætt var inn í gögn málsins: að samkvæmt kafla 3.15 í aðalskipulaginu megi gera ráð fyrir veitingaaðstöðu á opnum svæðum.

Við fórum yfir kaflann. Þar stendur að opin svæði séu fyrir útivist „auk þjónustu sem veitt er á forsendum útivistar“. Orðið veitingaaðstaða kemur ekki fyrir sem almenn heimild, heldur aðeins í umfjöllun um tvo tiltekna flokka bæjargarða. Og þeir garðar eru taldir upp með nafni: svæðin við Hraunsholtslæk og Arnarneslæk, strandsvæðin og svæði meðfram Reykjanesbraut. Norðurnes er ekki þar.

Aðalskipulagið er nefnilega mjög nákvæmt þegar það ætlar að leyfa veitingarekstur á útivistarsvæði. Um Arnarnesvog stendur beinlínis að þar sé gert ráð fyrir aðstöðu fyrir siglingaklúbb og kaffihús. Ekkert slíkt stendur um þennan reit.

Munurinn á kaffihúsi við göngustíg og veislusal fyrir 105 manns liggur í augum uppi. Spurningin er hvort skipulagið heimili hið síðara.

Í skipulagsnefnd lögðum við til að málinu yrði frestað þar til fyrir lægi álit bæjarlögmanns, hljóðmæling óháðs aðila og mat á áhrifum á fuglalífið við tjörnina. Sú tillaga var felld með fjórum atkvæðum gegn einu. Málið fór svo í gegnum bæjarráð og bæjarstjórn, þar sem Framsókn, Garðabæjarlistinn og Samfylkingin stóðu saman að bókun um sömu spurningu.

Í bókun meirihlutans er hins vegar hvergi fjallað um þetta. Þar er sagt að málið hafi verið kynnt nágrönnum, að athugasemdir hafi leitt til strangari skilyrða um hávaða og útiveru, og að tekið sé tillit til tjarnarinnar. Það er allt rétt, og skilyrðin eru raunverulegur ávinningur sem íbúarnir eiga heiðurinn af. Í raun svar við annarri spurningu.

Þetta snýst um meira en eitt hús. Aðalskipulag er loforð bæjarins til íbúa um hvað megi og hvað megi ekki á hverjum stað. Sé vikið frá því án skýrra raka veit enginn lengur hvað gildir í næsta máli, hvorki nágrannar né þeir sem vilja byggja upp. Hentistefna á ekki við.

Einar Þór Einarsson, fulltrúi Framsóknar í skipulagsnefnd Garðabæjar

Greinin birtist fyrst í postar.is þann 24. september 2026