Þetta er einfaldlega rangt
Branches

Þessi niðurstaða er einfaldlega röng og verður að endurskoða.“ Þannig kemst Seðlabanki Íslands að orði um eina af lykilfullyrðingunum í drögum að skýrslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Athugasemdin beinist að þeirri niðurstöðu að gengissveiflur íslensku krónunnar séu „stærðargráðum meiri“ en hjá öðrum norrænum gjaldmiðlum. Bankinn bendir á að þegar íslenska krónan er borin saman við aðra fljótandi norræna gjaldmiðla sé myndin allt önnur. Fyrir tímabilið 2012-2026 mældist staðalfrávik mánaðarlegra gengisbreytinga 1,8% fyrir íslensku krónuna en 1,7% fyrir þá norsku. Munurinn er því hverfandi.
Þegar skýrslan var kynnt var helsta niðurstaðan dregin saman í fyrirsögn á vef Stjórnarráðsins: „Kostnaður af krónu líklega meiri en ábatinn.“ Þar var jafnframt fullyrt að gengi krónunnar stuðlaði almennt ekki að efnahagslegum stöðugleika nema í stærstu áföllum og að gengissveiflur hefðu oftar magnað efnahagsskelli en dregið úr þeim.
Þessar afdráttarlausu niðurstöður vöktu eðlilega athygli. Minna hefur hins vegar farið fyrir því að Seðlabanki Íslands skilaði 27 blaðsíðna umsögn með tæplega hundrað athugasemdum við drög skýrslunnar. Þótt nokkrar breytingar hafi verið gerðar í lokaútgáfunni virðast margar athugasemdir bankans, sem lutu að meginforsendum og ályktunum skýrslunnar, hafa haft takmörkuð áhrif á þær afdráttarlausu fullyrðingar sem stóðu eftir.
Þetta skiptir máli. Seðlabankinn ber ábyrgð á framkvæmd peningastefnunnar og býr yfir mestri sérþekkingu á íslensku hagkerfi. Þegar bankinn gerir svo afdráttarlausar athugasemdir við lykilforsendur skýrslu sem ætlað er að leggja grunn að opinberri umræðu er eðlilegt að þær fái skýra umfjöllun. Samkvæmt siðareglum ráðherra ber ráðherra að hafa frumkvæði að því að leiðrétta rangar eða villandi upplýsingar og eyða misskilningi um málefni sem heyra undir hann.
Francis Bacon (1561-1626), einn af frumkvöðlum nútímavísinda, sagði að „þekking væri vald“, þ.e. hún veitti mönnum ekki aðeins áhrif heldur einnig ábyrgð. Sönn þekking byggist á kerfisbundinni athugun, reynslu og gagnrýninni hugsun og á vilja til að endurskoða niðurstöður þegar ný gögn eða málefnaleg gagnrýni kalla á það. Það er kjarninn í vísindalegri aðferð og jafnframt forsenda upplýstrar lýðræðislegrar umræðu. Þegar til umræðu er framtíðarfyrirkomulag gjaldmiðils Íslands eigum við að gera þá einföldu kröfu að niðurstöður standist faglega skoðun og að málefnaleg gagnrýni helstu fagstofnunar landsins fái það vægi sem hún á skilið. Það er kjarni þeirrar hugsunar sem Bacon setti fram fyrir rúmum fjórum öldum og hún á ekkert síður erindi við okkur í dag. Stuðlum að faglegri umræðu en ekki upplýsingaóreiðu.
Höfundur er formaður Framsóknarflokksins.
Höfundur: Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Greinin birtist fyrst +i Morgunblaðinu 6. ágúst 2026



