Þingmenn Framsóknar vilja húsnæðisliðinn út úr vísitölunni

News

Þingmenn Framsóknarflokksins, með Willum Þór Þórsson í fararbroddi hafa lagt fram þingsályktunartillögu. Markmið hennar er að fjármála – og efnahagsráðherra skipi starfshóp óháðra sérfræðinga sem greini kosti og galla þess að gera breytingar á útreikningi verðbólgu og verðtryggingar þannig að framvegis verði notuð samræmd vísitala neysluverðs í stað vísitölu neysluverðs. Við greiningarvinnuna á að horfa sérstaklega til þess hvernig verðbólga er mæld í helstu viðskiptalöndum Íslands en jafnframt skal meta hvaða áhrif breytingin hefði á launakjör, lánakjör, stöðu verðtryggðra lána og vexti.

Þessi tillaga er í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar en þar segir: ,,Fasteignaverð er liður í neysluvísitölu hér á landi og mikil hækkun þess á undanförnum árum hefur af þeim sökum leitt til þess að höfuðstóll verðtryggðra lána hefur hækkað meira en ella. Ríkisstjórnin mun hefja skoðun á því hvernig megi fjarlægja fasteignaverð úr mælingu neysluvístölunnar.“

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress