Til þjónustu reiðubúinn
Branches

Á laugardaginn 16. maí er hátíðisdagur, þá göngum við til kosninga. Þó við séum ekki skuldlaus eins og Bjartur í Sumarhúsum taldi forsendu frelsisins, þá erum við frjáls skoðana okkar og tjáningar og það frelsi er ekki sjálfgefið eins og mannkynssagan sýnir.
Ég býð mig fram til þjónustu við Garðbæinga sem oddviti Framsóknar.
Ég hef búið hér í 10 ár og þykir vænt um samfélagið sem hefur tekið mér og fjölskyldu minni vel og vil gera þetta samfélag enn betra.
Ég sjálfur er fjölskyldumaður, nýfluttur á Álftanes eftir 10 ár í Ásunum, sonur einstæðrar fjögurra barna móður sem hefur séð að það er ekki alltaf jafnt gefið þó hvert og eitt okkar spili svo úr því sem við fáum. Ég hef lengst af starfað í íþróttaheiminum, þjálfað börn og ungmenni og séð sjálfan mig í þeim. Ég hef sömuleiðis verið í brimróti hversdagsins eins og flestir með öllum þeim áskorunum sem því fylgja.
Þetta litar vitaskuld málefnin sem ég brenn fyrir, í kosningabaráttunni hefur áhersla okkar í Framsókn verið á lýðheilsu og fjölskyldumál og gæðastundir með fjölskyldunni sem flestir vilja meira af í heimi sem er á fleygiferð.
Þetta snýst um málefnin
Við viljum styðja samfélögin innan samfélagsins sem ramma inn tilveruna, hvort sem það eru íþróttir, menningarmál, skátarnir, kirkjustarf, félagsmál eldri borgara eða skólamálin.
Þessi samfélög, fjölmenn og fámenn eru víða um Garðabæ og móta bæjarbraginn.
En við skiljum líka verðmætasköpun og vitum að forsenda þeirra lífsgæða sem við viljum njóta er ábyrg fjármálastjórnun og rekstur. Þar höfum við bent á að víða er pottur brotinn, sveitarfélagið reiðir sig um of á einskiptistekjur til að standa undir rekstrinum. Skuldir hafa aukist og minna svigrúm er til að mæta útgjöldum. Stjórnsýslukostnaður hefur aukist og reksturinn ekki eins burðugur og oft hefur verið haldið fram. Hér eins og annars staðar munu augu sjá betur en auga.
Á nýjum vettvangi er gott að hafa í huga heilræði postulans um að oftreysta ekki eigin hyggindum og leita ráða hjá þeim sem rutt hafa veginn. Einn reyndur sveitarstjórnarmaður sagði öll þessi málefni og fleiri til mikilvæg en mikilvægast væri þó að skilja að bæjarfulltrúastarfið væri þjónustustarf, það þyrfti að hlusta á íbúa og láta sig daglegt líf þeirra varða. Ég mun hafa það að leiðarljósi og gæta hagsmuna Garðabæjar hvar sem ég kem.
Þetta snýst um fólkið
Eftir árin í Garðabæ þykir mér vænt um bæinn og tel mig þekkja taktinn í honum og hef kynnst fólki úr ólíkum áttum samfélagsins, setið til borðs með þeim sem fara með völdin en líka hlustað á þá sem minna fer fyrir.
Ég er tilbúinn í samtal við bæjarbúa og tilbúinn að vinna fyrir Garðabæ. Ég bið um ykkar stuðning á laugardaginn.
Þetta snýst um Garðabæ. Gleðilega hátíð!
Hlynur Bæringasson, oddviti Framsóknarflokksins í Garðabæ



