Tímamótasamningur á norðurslóðum

Branches

Undirritun nýs varnarsamkomulags Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna markar tímamót á norðurslóðum. Bandaríkin efla viðveru sína á Grænlandi, meðal annars við Pituffik og á nýjum varnarsvæðum í Narsarsuaq og Mestersvig. Samkomulagið bíður staðfestingar þjóðþinga en pólitísk skilaboð þess eru skýr. Öryggi norðurslóða er sameiginlegt viðfangsefni bandamanna.

Það sem vekur sérstaka athygli er að samkomulagið byggist á varnarsamningi Danmerkur og Bandaríkjanna frá 1951. Þegar öryggisumhverfið breytist grípa ríkin til samnings sem hefur þjónað þeim í 75 ár og þróa samstarfið áfram á þeim grunni. Um leið er lögð áhersla á hlutverk Grænlands og Atlantshafsbandalagsins. Öflug varnarviðbrögð þurfa að fara saman við virðingu fyrir sjálfsákvörðunarrétti Grænlendinga.

Fyrir okkur Íslendinga er þetta meira en frétt af nágrönnum. Sama ár, 1951, gerðu Ísland og Bandaríkin varnarsamning á grundvelli Atlantshafssáttmálans. Hann er enn í gildi ásamt aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu. Því er ekki hægt að afskrifa varnarsamninginn sem úrelt plagg frá öðrum tíma. Við þurfum að svara því sem þjóð hvernig við nýtum þann trausta grunn sem öryggis- og varnarmál hvíla á við breyttar aðstæður.

Undanfarið hafa heyrst sjónarmið hjá mörgum stjórnarliðum um að varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna frá 1951 hafi litla þýðingu. Nýtt samkomulag Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna sýnir hvers vegna slíkar vangaveltur eru tilhæfulausar. Gildi varnarsamnings felst ekki aðeins í orðunum sem voru rituð fyrir 75 árum heldur í samstarfinu sem ríkin byggja á.

Árið 2016 undirritaði ég sem utanríkisráðherra sameiginlega yfirlýsingu Íslands og Bandaríkjanna sem formfesti áframhaldandi loftrýmisgæslu, tímabundna viðveru kafbátaleitarvéla og aukið samstarf um varnarmannvirki og upplýsingaskipti ásamt leit og björgun. Yfirlýsingin var viðbót við samkomulag ríkjanna frá 2006 og byggðist á varnarsamningnum frá 1951, sem hélt áfram fullu gildi.

Ísland er herlaust ríki en við erum ekki áhorfendur að eigin öryggi. Við þurfum að standa vel að loftrýmiseftirliti, varnarmannvirkjum, viðbúnaði og móttöku bandamanna. Jafnframt þurfum við að rækta norrænt samstarf og efla eigin getu til að bregðast við áföllum. Þetta er hugsunin að baki fyrstu heildstæðu þjóðaröryggisstefnu Íslands.

Tímamótasamningur Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna um aukið öryggi á norðurslóðum minnir okkur á að varnarhagsmunir Íslands eru áfram nátengdir þeirri þróun sem nú á sér stað. Við eigum að mæta breyttum tímum af yfirvegun, standa vörð um fullveldið og efla það samstarf sem hefur tryggt öryggi okkar. Samningurinn frá 1951 heldur áfram fullu gildi og á honum grundvallast samskipti bandalagsríkja.


Höfundur er formaður Framsóknarflokksins.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 24. september 2026