Tölur og pólitík í Kópavogi

Branches

Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2025 var lagður fram í bæjarráði fyrir nokkrum dögum. Á heimasíðu Kópavogsbæjar má finna nákvæma yfirferð á reikningnum og helstu stærðum hans. Ekki er því ástæða til að endurtaka hér þá upptalningu í smáatriðum. Reikningurinn sýnir þó kröftugan rekstur bæjarins og niðurstöðutölu rekstrarreiknings sem er milljörðum hærri en áætlun gerði ráð fyrir. Hann sýnir líka tæpa fimm milljarða í veltufé frá rekstri sem er lykiltala. Framkvæmt var á síðasta ári fyrir tæpa 8 milljarða og engin ný lán tekin sökum þess að sala lóða gerði lántökuna óþarfa. Skuldir lækka að raunvirði og svokölluð skuldahlutföll bæjarins eru nánast í frjálsu falli og óra fjarri þeim hámarksviðmiðum sem lög kveða á um. Eigið fé samstæðunnar er 50 milljarðar. Reikningurinn er lagður fram af sérfræðingum og endurskoðendum í samræmi við alþjóðleg reikningsskil og staðla. Hann er í raun ekkert annað samantekt á staðreyndum og punktstaða á rekstri og fjárhag bæjarins þann 31.12 ár hvert. Semsagt lítið svigrúm til túlkana. Það hindrar þó ekki þá flokka sem standa utan meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs að túlka niðurstöðuna með sínum hætti. Af þeirra máli mætti ætla að Kópavogur væri fjárhagslega hreinlega á síðustu metrunum rekstrarlega og mikil vá fyrir dyrum. Það er auðvitað alls ekki raunin. En málflutningurinn auðvitað settur fram í pólitískum tilgangi og tilgangurinn helgar meðalið.

Orri Hlöðversson er formaður bæjarráðs í Kópavogi og oddviti framsóknar í kosningunum 16. maí.

Greinin birtist fyrst á visir.is 23. apríl 2026