Undrast fækkun á póstdreifingarstöðum

News

„Virðulegi forseti. Það líður að lokum þingsins. Síðustu vikur hefur mikil vinna farið fram í nefndum. Samvinna stjórnar og stjórnarandstöðu er að jafnaði góð í þeim nefndum sem ég starfa í. Oft næst þverpólitísk samstaða um breytingar eða hluta þeirra. Í öðrum málum er ágreiningur og í mörgum tilfellum er slíkur ágreiningur mikilvægur liður í að bæta mál. Nefndarvinnu er nú lokið eða að ljúka í nokkrum mikilvægum málum sem ég legg mikla áherslu á að skili sér til umræðu og afgreiðslu í þinginu. Þetta eru til dæmis mál eins og frumvarp til laga um námslán og námsstyrki, losun fjármagnshafta og stuðningur til kaupa á fyrstu íbúð.

Það skiptir okkur öll máli sem hér störfum að sem mest af þeirri vinnu sem við höfum lagt á okkur í mismunandi málum á öllum stigum skili sér í gegnum þingið. Því tel ég mjög mikilvægt að við fáum tækifæri til að vinna hér áfram í einhverja daga fyrir kosningar.

Þá langar mig líka að koma inn á mál sem á pappírnum sýnist vera hagsmunamál lítils hluta landsmanna en er sennilega stærra mál en okkur grunar, það er póstdreifingin í landinu. Eins og kunnugt er var póstdreifingardögum í dreifbýli fækkað á vormánuðum. Það kann að vera skynsamlegt en er algerlega fráleitt að farið sé í það verkefni öðruvísi en að í framhaldinu verði farið í endurskoðun á fleiri þáttum í póstdreifingunni, svo sem skiptingunni í A- og B-póst, hverjir geta tekið að sér póstdreifingu og fleira. Þá undrast ég að Póst- og fjarskiptastofnun hafi fallist á umsókn rekstrarleyfishafa um að fækka póstdreifingardögum á smærri þéttbýlisstöðum, stöðum sem ýmist eru skilgreindir sem þéttbýli eða dreifbýli, að því er virðist eftir hentugleika hverju sinni. Þetta á til dæmis við um staði eins og Borgarfjörð Eystri og Hvanneyri.“

Líneik Anna Sævarsdóttir í störfum þingsins 28. september 2016.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress