Upplagt að endurskoða vísitöluna

News

„Hæstv. forseti. Hagstofan hefur vanreiknað vísitölu neysluverðs í hálft ár. Ástæðan er sú að í útreikningum Hagstofunnar var reiknuð húsaleiga vanmetin. Í 12 mánaða útreikningum Hagstofunnar, áður en mistökin komu fram, var verðbólga mæld 0,9% þar sem stuðst er við vísitölu neysluverðs. En ef reiknað væri út frá samræmdri vísitölu neysluverðs, líkt og gert er í OECD-ríkjunum, hefði verðbólgan verið -0,9%. Ástæðan er sú að í samræmdri vísitölu neysluverðs er húsnæðisliðurinn ekki inni. Þar er hann hugsaður sem fjárfesting en ekki neysla líkt og hér á landi. Í nýjum tölum Hagstofunnar mælist verðbólga síðustu 12 mánaða 1,8%, ef stuðst er við vísitölu neysluverðs, en 0,4%, ef reiknað væri út frá samræmdri vísitölu neysluverðs. Þarna er um gríðarlegan mun á útreikningum að ræða og birtast þessi áhrif m.a. á verðtryggðum fjárskuldbindingum heimila í landinu. Vegna þessara mistaka er upplagt að endurskoða þau viðmið sem við reiknum vísitöluna út frá. Því þarf að minnast á þingsályktunartillögu mína sem ekki hefur komist á dagskrá þingsins og hljómar á þessa leið, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að skipa starfshóp óháðra sérfræðinga sem greini kosti og galla þess að gera breytingar á útreikningi verðbólgu og verðtryggingar þannig að framvegis verði notuð samræmd vísitala neysluverðs (SVN) í stað vísitölu neysluverðs (VNV). Við greiningarvinnuna verði sérstaklega horft til þess hvernig verðbólga er mæld í helstu viðskiptalöndum Íslands og metið hvaða áhrif breytingin hefði á launakjör, lánakjör, stöðu verðtryggðra lána og vexti.“

Við framsóknarmenn viljum koma þessu máli á dagskrá fyrir þinglok og við trúum ekki öðru en að aðrir flokkar séu okkur sammála. Það tekur enga stund að koma þessu máli í ferli. Hér er um afar hógværa tillögu að ræða en hún getur skipt gríðarlega miklu máli fyrir heimili landsins.“

Elsa Lára Arnardóttir í störfum þingsins 5. október 2016.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress