Urðum vitni að forsjálni, dugnaði og hugrekki björgunarsveita

News

„Virðulegi forseti. Eins og kunnugt er gekk aftakaveður tvisvar yfir Austurland í lok síðasta árs, annars vegar óhemju úrkoma samfara miklum leysingum þann 28. desember og hins vegar hvassviðri samfara óvenjulágum loftþrýstingi og hárri sjávarstöðu þann 30. desember. Í bæði skiptin varð verulegt tjón á mannvirkjum og mikið rof á landi. Tjón varð á fasteignum, lausafé, samgöngumannvirkjum og vatns- og fráveitum vegna vatnsflóða og skriðufalla þann 28. desember víða um Austurland, m.a. tugmilljóna króna tjón á vegum. Þann 30. desember varð einnig tjón á fasteignum, lausafé, t.d. bílum og vélum, fráveitum, vegum, flugvöllum og hafnarmannvirkjum, vegna sjávarflóða og foks, einkum á svæðinu frá Djúpavogi á Eskifjörð.

Í þessu veðri urðum við vitni að forsjálni, dugnaði og hugrekki björgunarsveita og fjölda annarra sem forðuðu því að tjónið yrði meira en raun varð á. Margir unnu í kapp við veður og vatn til að forða tjóninu og á nokkrum stöðum komu síðan íbúar saman eftir veðrið og hreinsuðu umhverfið. Allt þetta fólk á miklar þakkir skildar.

Þá vil ég líka vekja athygli á því að forsætisráðherra kallaði strax saman viðbragðshóp ráðuneyta vegna ástandsins á Austurlandi sem hefur haft það hlutverk að afla upplýsinga til að fá yfirýn yfir það tjón sem varð. Sveitarfélögin, Viðlagatrygging, Minjastofnun og fleiri hafa unnið að öflun upplýsinga um tjónið á síðustu vikum og komið þeim áfram til ráðuneytisins. Á næstu dögum ættu því að liggja fyrir heildarupplýsingar um tjónið og að hversu miklu leyti þeir sem urðu fyrir því eiga rétt á bótum. Þá verður farið sérstaklega yfir það tjón sem fellur utan hefðbundinna trygginga og metið hvort og að hvaða marki yrði hugsanlega hægt að bæta það.“

Líneik Anna Sævarsdóttir — Í störfum þingsins miðvikudaginn 20. janúar 2016.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress