Hvaða áhrif hefur fjárlagafrumvarpið á þitt heimili?

Notifications

Nýr vefur, utreikningur.is, gerir almenningi kleift að skoða áætluð áhrif helstu breytinga í fjárlagafrumvarpinu 2027 á eigið heimili.

Í dag opnar Framsókn vefinn utreikningur.is. Þar getur fólk fengið sundurliðað mat á því hvernig breytingar á sköttum, gjöldum og stuðningi við heimilin geta haft áhrif á heimilisbókhaldið.

Útreikningurinn nær til allra helstu áhrifaþátta í rekstri heilmilisins s.s. fjölskyldustærð og tekjur, húsnæðislán, akstur, fyrirhugaðar framkvæmdir á húsnæði og afþreyingar. Reiknivélin sýnir áætluð áhrif þeirra þátta sem hún nær til, út frá heimilisstöðu og forsendum fjárlagafrumvarpsins.

Frá milljörðum ríkissjóðs að heimilisbókhaldinu

Fjárlög eru oft rædd í milljörðum króna og út frá afkomu ríkissjóðs. Fyrir heimilin er spurningin hins vegar einföld: Hvað þýða þessar ákvarðanir stjórnvalda fyrir okkur?

Markmið vefsins er að gera samspil skatta, gjalda og stuðnings við heimilin sýnilegra og auðvelda almenningi að taka þátt í umræðunni um fjárlög og lífskjör. Margar breytingar sem virðast smávægilegar hver fyrir sig, geta haft veruleg samanlögð áhrif.

Vefnum er ætlað að styðja við umræðu á þremur sviðum:

• Gagnsæi: Að fólk geti kynnt sér forsendur útreikninganna, breytt þeim og skoðað hvernig niðurstöðurnar breytast með eigin aðstæðum.

• Kjör og kaupmátt: Að skýra hvernig skattar, opinber gjöld og stuðningur við heimilin hafa áhrif á ráðstöfunartekjur og kaupmátt. Sú yfirsýn getur nýst í heildstæðari umræðu um lífskjör hér á landi.

• Sjálfbær ríkisfjármál: Að styðja upplýsta umræðu um fjármögnun opinberrar þjónustu og forgangsröðun útgjalda. Öldrun þjóðarinnar og breyttar þjónustuþarfir kalla á langtímahugsun, þar sem bæði er horft til afkomu ríkissjóðs og þess hvernig ákvarðanir leggjast á heimilin.

Mat sem byggir á skýrum forsendum

Reiknivélinni er ekki ætlað að gefa eitt endanlegt svar um áhrif fjárlagafrumvarpsins. Niðurstöðurnar eru áætlanir sem ráðast af upplýsingum notenda, forsendum útreikninganna og þeim breytum sem reiknivélin nær til.

Með vefnum vill Framsókn færa umræðuna nær daglegum veruleika fólks og gera almenningi auðveldara að skoða hvernig ákvarðanir um ríkisfjármál birtast í eigin heimilisbókhaldi.

Við í Framsókn höfum áhyggjur af því hvernig samanlögð áhrif skattahækkana, gjaldahækkana og skerðinga leggjast á heimilin. Greining okkar á fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar dregur fram að höggið verði hlutfallslega þyngst hjá tekjulægri heimilum, sem hafa minnst svigrúm til að mæta auknum útgjöldum og tekjumissi. Framsókn telur því mikilvægt að fara aðra og skynsamari leið í fjárlagavinnunni á Alþingi, með það að markmiði að verja afkomu heimilanna, ná verðbólgu hraðar niður og skapa skilyrði fyrir mjúkri lendingu hagkerfisins.

Kynntu þér áhrifin á þitt heimili á utreikningur.is.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress