Var raun afbrigðilegt hvað fjöldann varðar

News

Silja Dögg Gunnardóttir, alþingismaður, segir í yfirlýsingu í dag að þegar rýnt sé í tölur um fjölda erlendra ferðamanna í maí mánuði s.l. sé hann svipaður og í maí 2016. „Það eru hins vegar árin 2017/2018 sem skera sig úr og eru í raun afbrigðileg hvað fjöldann varðar. Við erum t.d. að fá helmingi fleiri gesti í maí 2019 en við fengum í maí 2014 og þá vorum við nokkuð ánægð með stöðuna,“ sagir Silja Dögg.

„Vöxtur ferðaþjónustunnar hefur verið mjög hraður - jafnvel of hraður. Ég tel í raun að það sé jákvætt að nú hægist aðeins á vextinum. Þá fáum við tíma til að byggja betur undir þennan mikilvæga atvinnuveg; þ.e. samfélagslega innviði, bæta umgjörð laga og reglna sem og gæðastýringar innan greinarinnar.

Við viljum að gestir okkar upplifi landið okkar á jákvæðan hátt og samfélagið verður að bera gestafjöldann með góðu móti.“

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress