Vesturlandsvegur hefur setið eftir í umbótum í vegaframkvæmdum

News

„Hæstv. forseti. Mig langar að ræða Vesturlandsveg. Það undra sig kannski einhverjir á því að þingmaður Norðvesturkjördæmis ræði vegamál utan kjördæmis síns, en það er nú svo að Vesturlandsvegur skiptir miklu máli m.a. fyrir íbúa Akraness, en Akranes er stærsta sveitarfélagið í Norðvesturkjördæmi með 7.000 íbúa. Góðar samgöngur um Vesturlandsveg skipta jafnframt miklu máli fyrir önnur sveitarfélög í Norðvesturkjördæmi. Greining hefur sýnt fram á það að á hverjum degi fara um 2.000 bílar allt í allt fram og til baka úr sveitarfélögunum næst Hvalfjarðargöngunum norðan megin og í þeim er fólk sem sækir bæði vinnu og skóla til höfuðborgarinnar á hverjum degi. Greining hefur jafnframt sýnt fram á það að Vesturlandsvegur hefur setið eftir þegar kemur að umbótum í vegaframkvæmdum.

Það er nú svo að á köflum getur verið mjög erfitt fyrir bíla í forgangsakstri m.a. að komast leiðar sinnar eins og ég sá í gær þegar sjúkrabíll í forgangsakstri var á leið frá Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi og átti erfitt með að komast leiðar sinnar vegna þéttrar umferðar á þröngum vegi. Slíkir sjúkraflutningar eru farnir nánast undantekningarlaust dag hvern. Það er brýnt að fara í endurbætur á Vesturlandsvegi og bæjarstjórn Akraness hefur ályktað um málið og bent á brýna nauðsyn þess.

Í því samhengi langar mig að minnast á þingsályktunartillögu mína um Vesturlandsveg sem lögð var fram í þinginu þann 2. nóvember 2015. Hún fjallar um að hæstv. innanríkisráðherra hefji viðræður við borgarfulltrúa í Reykjavík, bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ og fulltrúa í sveitarfélögum á Vesturlandi, hafi samband við Vegagerðina og aðra hlutaðeigandi aðila um nauðsynlegar vegaumbætur á Vesturlandsvegi.

Mig langar að skora á hv. þingmenn og frambjóðendur í Norðvesturkjördæmi að koma í lið með okkur flutningsmönnum tillögunnar um að þrýsta á þetta brýna samgöngumál til umbóta fyrir íbúa Vesturlands og fyrir íbúa á landinu öllu.“

Elsa Lára Arnardóttir í störfum þingsins 19. ágúst 2016.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress