Fimmtudagskvöld á Þingvöllum - Þingfundur á Þingvöllum - Jón Sigurðsson forseti og frelsishetja
Date
Time
Location
Þingvellir
Setja í dagatal

Fyrsta fimmtudagskvöld sumarsins verður leitt af Guðna Ágústssyni fyrrverandi alþingismanni og ráðherra.
Ber kvöldið yfirskriftina: Þingvallahátíð! Jón Sigurðsson forseti og frelsishetja.
Dagskráin verður eftirfarandi:
1. Guðni Ágústsson setur hátíðina
2. Karlakór Selfoss syngur
3. Svandís Dóra Einarsdóttir flytur ljóð
4. Lilja Dögg Alfreðsdóttir minnist Jóns Sigurðssonar
5. Gunnlaugur Bjarnason óperusöngvari flytur ljóð Hjálmars Jónssonar Land og þjóð.
6. Karlakór Selfoss syngur
7. Guðni Ágústsson flytur lokaorð.

