Mótum framtíð Framsóknarfélags Árborgar
Date
Time
11:00
Location
Eyravegur 15
Municipality
The municipality of Árborg

Nýkjörin stjórn Framsóknarfélags Árborgar þakkar ykkur kærlega fyrir traustið og stuðninginn í stjórnarkjörinu 19. febrúar sl.
Nú viljum við taka næsta skref – og gera það með ykkur.
Við bjóðum ykkur á notalegan hitting næstkomandi laugardag kl. 11:00–12:00 þar sem við:
Hlýðum á ykkar hugmyndir um framtíðarstarf félagsins.
Ræðum hvernig við getum gert starfsemina öflugri og sýnilegri.
Leitum leiða til að efla fjáröflun og styrkja grunn félagsins.
Markmiðið er skýrt: að byggja upp kraftmikið félag sem höfðar til sem flestra og endurspeglar vilja félagsfólksins.
Eitthvað gómsætt verður í boði en það sem skiptir mestu máli er samtalið sjálft.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest og móta framtíðina saman.
Með bestu kveðju,
Stjórnin
Framsóknarfélagi Árborgar


