Miðstjórnarfundur
Date
Time
Location
Laugarbakki, Húnaþingi vestra
Municipality
Húnathing West
Setja í dagatal

Landsstjórn Framsóknar hefur boðað til haustfundar miðstjórnar í Norðvesturkjördæmi helgina 7.-8. nóvember. Fundurinn verður haldinn á Hótel Laugarbakka í Miðfirði. Á fundinum verður félagsstarf flokksins sérstaklega til umræðu, sbr. gr. 10.3 í lögum flokksins.
Kvöldverðarhóf verður á laugardagskvöldinu, 7. nóvember.
Við vonumst eftir góðri mætingu til að ræða málin og þjappa hópnum saman.
Við viljum vekja athygli á því að haldinn verður sveitarstjórnarráðstefna fyrir sveitarstjórnarfólk Framsóknar á föstudeginum 6. nóvember. Dagskrá verður send út fljótlega.
Við biðjum miðstjórnarfulltrúa sem forfallast að láta skrifstofu vita sem allra fyrst svo unnt sé að boða varafulltrúa.
Drög að dagskrá:
Laugardagur 7. nóvember
10:30 - Setning miðstjórnarfundar, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknar
10:35 - Kosning fundarstjóra og ritara fundarins
10:40 - Ræða formanns Framsóknar, Lilja Dögg Alfreðsdóttir
11:10 - Ræða varaformanns Framsóknar, Stefán Vagn Stefánsson
11:30 - Skýrsla ritara Framsóknar um störf landsstjórnar og innra starf, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir
11:45 - Hádegisverður
12:30 - Skýrsla málefnanefndar og vinnustofur
14:30 - Kaffihlé
15:00 - Almennar umræður
17:30 - Frestun fundar til sunnudags
20:00 - Hátíðarkvöldverður
Sunnudagur 8. nóvember
10:30 - Skýrslur nefnda:
- Fræðslu- og kynningarnefnd
- Sveitarstjórnarráð
- Launþegaráð
11:00 - Kosning í fastanefndir miðstjórnar
11:15 - Stjórnmálaályktun - afgreiðsla
12:30 - Fundarslit og hádegisverður
***
Praktískar upplýsingar:
Gisting er á Hótel Laugarbakka:
Einsmanns herbergi er á kr. 20.000,- pr/nótt
Tveggja manna herbergi er á kr. 28.000,- pr/nótt
Þriggja manna herbergi er á kr. 36.900,- pr/nótt
Morgunverðarhlaðborð og aðgangur að heitum pottum er innifalið í
verðinu.
Miðstjórnarfundurinn er fram í Grettissal á Hótel Laugarbakka.
Fundarkaffi og meðlæti verður í boði yfir allan daginn.
Gyða Sigríður, móttökustjóri, sér um að taka á móti pöntunum á netfangið: hotel@laugarbakki.is
***
Úr lögum Framsóknar um miðstjórn:
10.1. Miðstjórn fer með umboð flokksins á milli flokksþinga og útfærir meginstefnu hans í landsmálum. Miðstjórn ákvarðar um þátttöku flokksins í ríkisstjórn. Málefnasamning um ríkisstjórnarsamstarf skal leggja fyrir miðstjórn.
10.2. Í miðstjórn eiga sæti:
Einn fulltrúi fyrir hverja 100 félagsmenn í hverju kjördæmi eða brot úr þeirri tölu umfram 50. Þessir fulltrúar skulu kosnir á kjördæmisþingum til eins árs í senn eftir reglum sem hlutaðeigandi kjördæmissamband setur. Þriðjungur fulltrúanna hið minnsta skal vera úr hópi ungs framsóknarfólks. Jafnmargir varamenn skulu kjörnir á sama hátt.
Alþingismenn flokksins og ráðherrar.
Landsstjórn og framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins.
Fyrrverandi þingmenn og ráðherrar Framsóknarflokksins enda séu þeir félagsmenn.
Aðalmenn í sveitarstjórn, sveitarstjórar eða bæjarstjórar enda séu þeir félagsmenn.
Stjórn og varastjórn launþegaráðs Framsóknarflokksins, sbr. gr. 8.4.
Sjö fulltrúar kosnir af landsstjórn.
10.3. Miðstjórn skal boðuð til fundar tvisvar á ári, vor og haust með 30 daga fyrirvara. Vorfundir skulu haldnir í framhaldi af kjördæmaþingum. Þó er heimilt að boða til auka fundar miðstjórnar með skemmri fyrirvara. Á vorfundi skal taka félagsstarf flokksins á komandi starfsári sérstaklega til umræðu. Aðrir fundir miðstjórnar skulu haldnir þegar landsstjórn flokksins ákveður og eru þeir löglegir ef þar mætir meirihluti miðstjórnarmanna. Einnig er skylt að boða til miðstjórnarfundar ef þriðjungur miðstjórnarmanna krefst þess skriflega. Það ár sem flokksþing er haldið hefur framkvæmdastjórn heimild til að fella niður vorfund miðstjórnar og færa umræðu um félagsstarf flokksins fram til haustfundar.
10.4. Á vorfundi miðstjórnar skulu miðstjórnarmenn kjósa úr sínum hópi til eins árs í senn:
a) Fjóra fulltrúa í fræðslu- og kynningarnefnd Framsóknarflokksins og tvo til vara.
b) Fjóra fulltrúa í málefnanefnd Framsóknarflokksins og tvo til vara.
10.5. Innan miðstjórnar starfar fræðslu- og kynningarnefnd. Hana skipa formaður sem framkvæmdastjórn skipar og fjórir meðstjórnendur skv. a-lið gr. 10.4. Hlutverk nefndarinnar er að skipuleggja og hafa umsjón með framkvæmd kynningar- og fræðslumála Framsóknarflokksins og skal hún sérstaklega leggja áherslu á upplýsingamiðlun innan flokksins. Nefndin skal flytja skýrslu um störf sín á haustfundi miðstjórnar ár hvert.
10.6. Innan miðstjórnar starfar málefnanefnd. Hana skipa formaður sem framkvæmdastjórn skipar og fjórir meðstjórnendur skv. b-lið gr. 10.5. Hlutverk nefndarinnar er að skipuleggja og hafa umsjón með málefnastarfi og stefnumótunarvinnu Framsóknarflokksins. Nefndin skal flytja skýrslu um störf sín á haustfundi miðstjórnar ár hvert.


