Reykjavík: Ætti að fjölga þingmönnum á höfuðborgarsvæðinu?

Date

13. október 2026
13. október 2026

Time

Location

Reykjavík

Municipality

Reykjavik

Setja í dagatal

Framsóknarfélag Reykjavíkur boðar til umræðufundar um tillögur starfshóps dómsmálaráðherra um breytingar á kosningalögum þriðjudaginn 13. október klukkan 20:00. Nánari staðsetning þegar nær dregur.

Á fundinum munu Ólafur Þ. Harðarson prófessor emerítus og Sigrún Helga Lund prófessor kynna tillögur starfshópsins, sem fela einkum í sér að vægi atkvæði verði jafnað á milli kjördæma innan þess ramma sem núverandi ákvæði stjórnarskrár gera ráð fyrir.

Slík breyting myndi hafa þær afleiðingar í för með sér að þingmönnum á suðvesturhorninu myndi fjölga verulega, en þingmönnum á landsbyggðinni fækka. Ef tillagan kæmist til framkvæmdar gæti þingmönnum Framsóknarflokksins á höfuðborgarsvæðinu fjölgað á kostnað þingmanna flokksins á landsbyggðinni.

Dagskrá fundarins:

1) Ólafur Þ. Harðarson prófessor emerítus og Sigrún Helga Lund prófessor kynna tillögur starfshóps dómsmálaráðherra um breytingar á kosningalögum
2) Umræður og spurningar um tillögur starfshópsins

Fundarstjóri verður Haukur Logi Karlsson, varaformaður Framsóknarfélags Reykjavíkur


Viðburðurinn á facebook