Innviðir
Samþykkt á 37. Flokksþingi

Fjarskipti og stafrænir innviðir
Stafræn þróun
Framsókn vill að ný tækni og þekking séu nýtt markvisst, sérstaklega í stjórnsýslu og opinberri þjónustu.
Framsókn leggur áherslu á aukið samstarf á milli sveitarfélaga og sveitarfélaga og ríkis um stafræna umbreytingu og nýsköpun.
Framsókn vill byggja áfram á verkefninu „Stafrænt Ísland“.
Framsókn leggur áherslu á að stafrænar lausnir byggi á þörfum almennings og fyrirtækja, séu aðgengilegar öllum og taki mið af þeim sem ekki geta nýtt hefðbundnar stafrænar lausnir.
Framsókn telur mikilvægt að halda áfram stafvæðingu sem hefur aukið hraða afgreiðslu mála og skilað hagræðingu hjá stofnunum.
Framsókn vill horfa í víðu samhengi til þess hvernig reka megi öfluga opinbera þjónustu og afgreiðslu um allt land.
Framsókn vill styðja við þróun gervigreindar- og tæknifyrirtækja með skýrum hvötum og stuðningi við rannsóknir og þróun.
Framsókn telur nauðsynlegt að efla stafræna innviði um allt land til að tryggja jöfn tækifæri til atvinnuþátttöku.
Framsókn leggur áherslu á netöryggi sem efnahagsmál og þjóðaröryggismál.
Framsókn vill stuðla að því að íslensk fyrirtæki nýti sér tækifæri stafrænnar umbreytingar til að auka samkeppnishæfni.
Fjarskiptainnviðir
Framsókn telur að öflugir stafrænir innviðir og traust fjarskiptaöryggi sé forsenda nýsköpunar og stafrænnar fjárfestingar.
Framsókn vill tryggja öruggar gagnatengingar við útlönd og uppbyggingu innviða innanlands.
Framsókn leggur áherslu á að hraða stefnumótun stjórnvalda um net- og upplýsingaöryggi.
Framsókn vill sérstaklega efla netöryggi, örugga auðkenningu og vernd persónuupplýsinga.
Framsókn telur að Ísland þurfi skýra stefnu og markvissar aðgerðir í stafrænu öryggi.
Framsókn leggur áherslu á að uppbygging gagnavera efli upplýsingatækniiðnaðinn og taki mið af öryggi, staðsetningu og vaxandi orkuþörf.
Ísland fulltengt
Framsókn leggur áherslu á árangur ljósleiðaravæðingar í ríkisstjórnartíð flokksins.
Framsókn telur mikilvægt að ekki aðeins stærri bæir heldur einnig dreifbýli og minni þéttbýlisstaðir njóti fullnægjandi tenginga.
Framsókn vill fylgja átaki um ljósleiðaravæðingu eftir og klára þá staði sem eftir eru.
Farsíma- og farnetssamband
Framsókn leggur áherslu á traust fjarskiptaöryggi í öllum byggðum og á þjóðvegum landsins.
Framsókn vill bæta tengingar á svæðum utan þjónustusvæða fjarskiptafyrirtækja með fjölgun senda.
Framsókn leggur áherslu á aukið öryggi á vinsælum gönguleiðum, meðal annars fyrir ferðamenn.
Framsókn vill tryggja að fjarskiptainnviðir nýtist til fulls, þar á meðal Tetra-fjarskiptakerfið.
Framsókn leggur áherslu á að tryggt sé að lágmarki aðgengi að einni hljóðvarpsrás í öllum byggðum landsins og meðfram helstu stofnvegum.
Samgöngur
Framsókn vill halda áfram þeirri uppbyggingu í samgöngum sem hafa átt sér stað síðastliðin ár með markvissri fjárfestingu í öruggum innviðum sem bæta lífsgæði.
Framsókn telur 15 ára samgönguáætlun lykilplagg í samræmingu samgöngumála og leggur áherslu á að hún sé raunhæf og endurspegli forgangsröðun landshlutanna.
Framsókn leggur áherslu á að sveitarfélög og íbúar geti treyst því að stjórnvöld vinni eftir samþykktri samgönguáætlun og að framkvæmdum sem í hana rata sé hrundið hratt og örugglega í framkvæmd.
Vegakerfið
Framsókn vill halda áfram að bæta þjóðvegakerfið í ljósi aukins umferðarálags og uppsafnaðrar viðhaldsþarfar.
Framsókn leggur áherslu á að verja þær fjárfestingar sem ráðist hefur verið í á undanförnum áratugum gegn skemmdum.
Framsókn vill flýta arðbærum samgönguverkefnum sem hafa þjóðhagslegan ávinning og beinan ábata fyrir vegfarendur.
Framsókn telur mikilvægt að auka framlög til vetrarþjónustu svo vegir nýtist íbúum og atvinnulífi allt árið.
Framsókn leggur áherslu á að umferðaröryggi sé leiðarljós í öllum vegaframkvæmdum, meðal annars með: útrýmingu einbreiðra brúa, aðskilnaði akstursstefna á umferðarþyngstu köflum og öflugu eftirliti og löggæslu.
Framsókn vill farsímasamband á þjóðvegum sem mikilvægan öryggisþátt.
Framsókn leggur áherslu á að fækka malarvegum og stytta vegalengdir milli byggða til að: styrkja atvinnusvæði, draga úr slysum og samfélagskostnaði, minnka umhverfisáhrif, viðhaldskostnað og eldsneytisnotkun.
Jarðgöng
Framsókn vill ljúka við helstu jarðgöng landsins á næstu 30 árum.
Framsókn vill tryggja að á hverjum tíma séu að lágmarki tvenn jarðgöng í framkvæmd.
Framsókn vill nýta tækni til hins ítrasta til að hraða uppbyggingu jarðganga.
Fjármögnun
Framsókn vill móta framtíðarstefnu um fjármögnun vegakerfisins með áherslu á jafnræði í gjaldtöku.
Framsókn telur mikilvægt að kerfið sé sveigjanlegt svo hægt sé að flýta framkvæmdum um land allt.
Framsókn vill efla samvinnu hins opinbera og einkaaðila til að hraða þjóðhagslega arðsömum verkefnum.
Framsókn leggur þó áherslu á að þátttaka ríkisins í stórum samvinnuverkefnum (PPP) komi ekki í veg fyrir brýnar úrbætur á vegakerfinu um allt land.
Almenningssamgöngur og grænni samgöngur
Framsókn vill efla vistvæna ferðamáta og draga úr umhverfisáhrifum samgangna, álagi á samgöngumannvirki og kostnaði samfélagsins.
Framsókn vill stuðla að öflugum almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu, í þéttbýli og dreifbýli, og milli landshluta.
Framsókn leggur áherslu á tengingar milli ferðamáta, meðal annars við flugvelli og ferjuhafnir.
Framsókn telur trausta ferjuþjónustu lykilatriði í búsetuskilyrðum og leggur áherslu á uppbyggingu hafna, bryggja og endurnýjun ferja.
Framsókn leggur áherslu á að efla innviði fyrir gangandi, hjólandi og notendur rafhlaupahjóla.
Framsókn vill að stefnumótun taki mið af nýjum lausnum, svo sem deilihagkerfi og fjölbreyttum ferðamátum.
Framsókn vill ráðast í stórátak í uppbyggingu hraðhleðslustöðva um land allt.
Framsókn leggur áherslu á að styrkja flutnings- og dreifikerfi raforku.
Framsókn vill efla Loftbrúarverkefnið og innanlandsflug sem hluta almenningssamgangna.
Framsókn vill tryggja skilvirkar almenningssamgöngur, framkvæmdir sem stytta leiðir og greiðari umferð milli hverfa á höfuðborgarsvæðinu.
Flugvellir
Framsókn vill tryggja heildstæða stefnu um uppbyggingu flugsamgangna um allt land.
Framsókn leggur áherslu á að skýra hlutverk flugvalla sem innanlands-, millilanda- og varaflugvelli.
Framsókn vill styrkja flugvelli á Akureyri og Egilsstöðum til millilandaflugs og sem varaflugvelli, fjölga tækifærum í ferðaþjónustu og skapa atvinnu heima fyrir. Þannig opnast fleiri gáttir inn í landið, sem stuðlar að jafnari dreifingu ferðamanna um landið.
Framsókn leggur áherslu á aukin framlög til framkvæmda og viðhalds flugvalla.
Framsókn telur sjúkraflug vera lykilhluta heilbrigðiskerfisins og öryggishlutverk flugvalla hefur aukist. Framsókn vill tryggja viðeigandi búnað til að þeir geti sinnt þessu hlutverki.
Framsókn leggur ríka áherslu á að Reykjavíkurflugvöllur verið áfram miðstöð innanlands- og sjúkraflugs og flugstöðina þarf að endurnýja sem fyrst. Gildi Reykjavíkurvallar sem varaflugvallar verið ekki skert.
Hafnir
Framsókn vill halda áfram að dýpka og efla hafnir til að mæta stærri skipum og auknum umsvifum.
Framsókn leggur áherslu á að styðja fjármögnun stórra hafnarframkvæmda og að fjármögnun verði aðlöguð að breyttum aðstæðum.
Framsókn vill endurnýja og styrkja sjóvarnir víða um land.
Framsókn leggur áherslu á orkuskipti í haftengdri starfsemi, meðal annars í ferjum og höfnum.
Framsókn telur mikilvægt að greina hagkvæmni vöruflutninga á sjó með tilliti til umhverfisáhrifa.
Húsnæðismál
Framsókn leggur áherslu á að landsmenn búi við húsnæðisöryggi og jafnrétti í húsnæðismálum, byggingakostnaður verður að lækka.
Framsókn leggur áherslu á hraðari uppbyggingu húsnæðis með nægu framboði byggingarhæfra lóða.
Framsókn vill tryggja hagkvæma fjármögnun á uppbyggingu séreigna- og leiguhúsnæðis.
Framsókn vill tryggja með markvissum húsnæðisstuðningi að allir hafi aðgang að öruggu og góðu húsnæði með viðráðanlegum kostnaði.
Framsókn telur að byggingarréttar- gatnagerðar- og innviðagjöld tengd úthlutun lóða séu orðin of stór hluti kostnaðar við uppbyggingu íbúða.
Húsnæðisstefna
Framsókn vill ná jafnvægi á húsnæðismarkaði með sérstakri áherslu á fyrstu kaupendur og tekju- og eignaminni heimili.
Framsókn vill tryggja fjölbreytt framboð íbúða sem mætir þörfum hverju sinni.
Framsókn telur að stöðugleiki í húsnæðis- og leiguverði sé forsenda öryggis heimila.
Framsókn leggur áherslu á að húsnæðisstefna hafi ekki aðeins áhrif á lífsgæði, ráðstöfunartekjur og húsnæðisöryggi, heldur einnig á efnahagsmál þjóðarinnar í heild.
Almenna íbúðakerfið
Framsókn vill halda áfram uppbyggingu almenna íbúðakerfisins.
Framsókn leggur áherslu á opinberan framboðsstuðning, einkum í gegnum stofnframlög og hlutdeildarlán að skilyrði þeirra verði rýmkuð svo að fleiri eignir falli undir þau.
Framsókn telur að framboð íbúða þurfi að styðja við virkan vinnumarkað og efla vinnusóknarsvæði um land allt.
Framsókn vill auka húsnæðisöryggi tekju- og eignalægri einstaklinga og fjölskyldna, fyrstu kaupenda, heimila með mikla framfærslubyrði og þeirra sem búa við markaðsbrest á húsnæðismarkaði.
Framsókn leggur áherslu á að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu.
Framsókn vill lækka húsnæðisbyrði tekju- og eignaminni með því að auka framboð hagkvæms húsnæðis á leigumarkaði.
Framsókn telur að óhagnaðardrifið leiguhúsnæði sé of lítill hluti af heildarleigumarkaði hér á landi og vill setja fram metnaðarfull markmið um að auka hlut óhagnaðardrifins leiguhúsnæðis.
Aukið framboð á húsnæði
Framsókn telur að stærsta áskorunin sé að tryggja nægt magn fjölbreytts húsnæðis.
Framsókn vill móta skýra stefnu um hvernig bregðast eigi við mikilli fólksfjölgun þegar uppbygging íbúða heldur ekki í við hana.
Framsókn leggur áherslu á að allar leiðir séu skoðaðar til að auka framboð lóða undir íbúðarhúsnæði, meðal annars með svæðisskipulagi.
Framsókn vill beita jákvæðum hvötum til uppbyggingar, til dæmis með endurgreiðslu gjalda vegna uppbyggingar græns húsnæðis.
Framsókn vill gera lífeyrissjóðum auðveldara að taka þátt í uppbyggingu leiguhúsnæðis með rýmri heimildum til fjárfestinga í leigufélögum.
Framsókn telur að breytt aldurssamsetning hafi veruleg áhrif á eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði og tegund búsetuúrræða.
Framsókn leggur áherslu á að stjórnvöld og sveitarfélög tryggi óhagnaðardrifnum byggingafélögum aðgang að ódýru fjármagni og lóðum og styðji uppbyggingu lífsgæðakjarna og leigu-, eigna- og búseturéttaríbúða fyrir eldra fólk.
Framsókn telur mikilvægt að tryggð verði fjármögnun frá ríki til sveitarfélaga til uppbyggingar á fjölbreyttu húsnæði fyrir fatlað fólk. Leita þarf leiða til að hraða uppbyggingu á hagkvæman hátt.
Samþykkt á 38. Flokksþingi Framsóknar í Reykjavík 14.-15. febrúar 2026.