Alvöru alþjóðlegan flugvöll hinum megin á landinu?

News

Páll Jóhann Pálsson, alþingismaður,; „Virðulegi forseti. Nýlega skilaði Rögnunefndin margumrædda af sér áliti og segja má að ekki hafi slegið á umræðuna, heldur þvert á móti, um það hvort Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýri eða einhvers staðar annars staðar. Það eru ákveðin vonbrigði að nefndin hafi ekki skoðað þá kosti að flugvöllurinn yrði áfram í Vatnsmýrinni og að innanlandsflugið yrði flutt til Keflavíkur. Ljóst er að borgaryfirvöld vilja ekki festa Reykjavíkurflugvöll til langrar framtíðar í Vatnsmýrinni og skipuleggja stóraukna byggð. Að sjálfsögðu þarf ekki að taka það fram að flugvöllur verður ekki færður, hann verður eyðilagður. Ég spyr: Höfum við efni á því að henda 20 milljörðum? Það er ekki gáfulegt að byggja nýjan flugvöll nær Keflavíkurflugvelli eða í Hvassahrauni, að fórna öðru byggingarlandi fyrir það byggingarland sem Reykjavíkurflugvöllur er á núna er ekki gáfulegt.

Keflavíkurflugvöllur er í raun sprunginn og ekki hefst undan að stækka flugstöðina. Ferðamannastaðir við suðvesturhornið eru sprungnir og samgöngukerfið í raun líka. Meira en helmingur af bolfisksvinnslunni er klukkutímakeyrslu frá Reykjavík.

Því spyr ég hvort ekki sé kominn tími til að byggja upp alvöru alþjóðlegan flugvöll hinum megin á landinu. Með því dreifum við ferðamannastraumnum um landið og hlífum þar með viðkvæmum náttúruperlum sem liggja undir skemmdum vegna áníðslu. Með því eflum við fiskvinnslu á landsbyggðinni þar sem landsbyggðin verður betur í stakk búin til að auka verðmæti sjávaraflans og byggja öfluga byggðakjarna víða um land.“

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress