Íslenska til framtíðar
Branches

Tungumálið okkar er ein dýrmætasta sameign þjóðarinnar. Íslenskan varðveitir hugsanir, tilfinningar og sögu, tengir kynslóðir og er undirstaða sjálfsmyndar og sjálfstæðis. Í nýútkominni bók sinni, Líf í bókum, minnir Halldór Guðmundsson rithöfundur á sérstöðu íslenskrar sagnahefðar. Á meðan latína var ráðandi í ritmenningu Evrópu skrifuðu Íslendingar stórbrotnar sögur á eigin tungumáli, ekki aðeins um konunga heldur venjulegt fólk, átök þess og örlög. Bók Halldórs er stórvirki sem dregur með einstökum hætti fram ríkidæmi íslenskrar bókmenntasögu.
Saga bókaþjóðarinnar er enn í mótun, eins og við sjáum best með metnaðarfullri bókaútgáfu.
Tungumál lifir þegar við notum það og tryggjum því sess í framtíðinni. Í stað þess að óttast áhrif enskunnar og nýrrar tækni eigum við að mæta breytingunum af metnaði og framsýni. Við höfum sýnt að það er hægt. Metnaðarfull máltækniáætlun og samstarf stjórnvalda, fræðasamfélags og fyrirtækja skiluðu mikilvægum áföngum. Árið 2023 var íslenska valin til sérstakrar þróunar í forritinu GPT-4 hjá gervigreindarfyrirtækinu OpenAI, fyrst tungumála utan ensku. Við unnum einnig að stöðu íslenskunnar hjá Microsoft, meðal annars gagnvart gervigreindaraðstoð þeirra, Copilot, og samstarf við Disney skilaði fjölmörgum kvikmyndum og þáttum á íslensku á efnisveitunni Disney+. Fámenn þjóð getur haft áhrif á tæknirisa þegar hún talar skýrt og stendur saman. En framtíð tungumálsins ræðst líka á heimilum, í skólum og á vinnustöðum. Orðaforði og málfærni opna dyr að menntun og tækifærum. Því verðum við að rækta lestur, bókaútgáfu og íslenskt menningarefni. Fólki sem flytur hingað þarf jafnframt að standa til boða góð íslenskukennsla. Tungumálið er brú inn í samfélagið. Því fagna ég nýjum undanþágum stjórnvalda sem greiða tilteknum hópum leið í háskólanám í íslensku sem öðru máli. Við megum ekki veikja rætur okkar og því þarf jafnframt að festa betur í sessi alþjóðlegt meistaranám í íslenskum miðaldafræðum við Háskóla Íslands. Námið hefur brautskráð hundruð nemenda. Þeir eru sendiherrar íslenskrar menningar um heim allan.
Á degi íslenskrar tungu hlaut Vilhjálmur Þorsteinsson, stofnandi Miðeindar, verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og átakið Gefum íslensku séns sérstaka viðurkenningu. Ég óska þeim innilega til hamingju. Þau minna okkur á að framtíð íslenskunnar verður sköpuð með bæði hugviti og hlýju.
Loks fagna ég átaki Almannaróms og Íslandsstofu til að fá Apple til að bjóða upp á íslensku í tækjum sínum. Ég vil hvetja alla til að styðja við þetta átak með því að fara inn á vefsíðuna: www.tryggjumislensku.is. Þetta er jákvætt framtak hjá stjórnvöldum og til þess fallið að styrkja íslenskuna til framtíðar.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Höfundur er formaður Framsóknarflokksins.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 19. nóvember 2026



