Ályktun sveitarstjórnarráðs Framsóknar 6. nóvember 2026

News

Ályktun á sveitarstjórnarráðstefnu Framsóknar
Hvammstanga 6. nóvember 2026


Sveitarstjórnarfólk Framsóknar gagnrýnir harðlega vinnubrögð mennta- og barnamálaráðherra við fyrirhugaðar breytingar á námsmati grunnskóla. Breytingar á jafn mikilvægum þætti skólastarfs verða að byggjast á faglegum rökum, traustri þekkingu, raunverulegu samráði við skólasamfélagið og nægilegum undirbúningstíma. Það eitt að skipta bókstöfum út fyrir tölur tryggir hvorki betra nám né aukna farsæld barna. Námsmat á fyrst og fremst að styðja við nám, framfarir og sjálfstraust nemenda og veita þeim og foreldrum þeirra skýrar og gagnlegar upplýsingar um námslega stöðu og næstu skref.

Sveitarstjórnarfólk Framsóknar hvetur sveitarstjórnir landsins til að standa með kennurum og skólasamfélaginu og hafna innleiðingu sem boðuð var einhliða á þessu skólaári og um leið krefjast þeirrar faglegu nálgunar sem breytingar á námsmati kalla á.

Sveitarstjórnarfólk Framsóknar leggur ríka áherslu á öflugt og metnaðarfullt skólastarf þar sem farsæld, vellíðan og menntun barna eru ávallt í forgrunni. Öll börn, óháð búsetu eða aðstæðum, eiga að njóta jafns aðgangs að vandaðri menntun og stuðningi við hæfi. Til þess þarf að tryggja góðar náms- og starfsaðstæður, efla faglegt starf innan skólanna og skapa kennurum og öðru starfsfólki svigrúm til að sinna því sem mestu máli skiptir, námi og velferð barnanna.

Það er mikilvægt að fylgja innleiðingu farsældarlaganna eftir af festu, efla snemmtæka íhlutun og samþætta þjónustu við börn og fjölskyldur. Þar verður ríkið að axla sína ábyrgð og tryggja að verkefnum sem sveitarfélögum eru falin fylgi fullnægjandi fjármagn.

Brýnt er að ríki og sveitarfélög móti sameiginlega framtíðarsýn í menntamálum þar sem aukinn námsárangur, vellíðan barna, fagmennska og traust á skólastarfi eru leiðarljós. Raunverulegar umbætur verða til með samtali og samstarfi við þau sem best þekkja skólastarfið.

Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skorar á ríkisstjórnina að tryggja virkt samráð við sveitarfélög og skólasamfélagið, enda eru menntun og farsæld barna sameiginleg ábyrgð ríkis og sveitarfélaga.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress