Fer saman hljóð og mynd í Hafnarfirði?

Undanfarna daga hafa bæjaryfirvöld lagt áherslu á að uppsagnir og skipulagsbreytingar í stjórnsýslu Hafnarfjarðarbæjar muni ekki hafa áhrif á þjónustu við bæjarbúa. Bæjarstjóri hefur lýst því yfir að markmiðið sé að tryggja að breytingarnar hafi ekki áhrif á þjónustu við bæjarbúa og að aðeins kynni að verða smávægilegar truflanir fyrstu dagana.

Sú fullyrðing vekur hins vegar fleiri spurningar en hún svarar.

Í tillögum bæjarstjóra er gert ráð fyrir nettófækkun um 18,6 stöðugildi. Þar er ekki aðeins verið að draga úr yfirbyggingu, þar er verið að fækka sérfræðingum á velferðarsviði, segja upp starfsfólki sem hefur sinnt samræmdri móttöku flóttafólks og starfsfólki sem hefur unnið að innleiðingu farsældarlaga og samþættingu þjónustu fyrir börn og fjölskyldur.

Það er því full ástæða til að spyrja: Hvernig getur meirihlutinn haldið því fram að þjónustan skerðist ekki?

Þekking, reynsla og fagmennska eru ekki rekstrarliðir sem hægt er að afskrifa á excel-skjali án afleiðinga. Þegar sérfræðingum er sagt upp hverfur með þeim dýrmæt þekking sem byggð hefur verið upp á löngum tíma. Sú þekking er forsenda þess að hægt sé að veita fjölskyldum, börnum og öðrum viðkvæmum hópum faglega og árangursríka þjónustu.

Það sem vekur hvað mestar áhyggjur er að kjörnir fulltrúar hafa óskað eftir upplýsingum um áhrif breytinganna, sundurliðun uppsagna eftir sviðum, faglegum forsendum ákvarðananna og áhrifagreiningum á þjónustu við íbúa.

Slík gögn hafa ekki verið lögð fram. Í staðinn eru bæjarbúar beðnir um að treysta því að þjónustan skerðist ekki.

Á hvaða grundvelli?

Hvaða greining sýnir að hægt sé að segja upp sérfræðingum á sviði barna- og fjölskyldumála án þess að það hafi áhrif á þjónustu ?

Hvaða gögn sýna að lögbundinni þjónustu verði sinnt með sama gæðastigi eftir að verkefni eru færð á færri hendur?

Hver ber ábyrgð ef sú fullyrðing reynist röng?

Þegar sveitarfélag tekur ákvarðanir sem hafa bein áhrif á börn og fjölskyldur á ekki að styðjast við vonir eða yfirlýsingar. Það á að byggja á faglegum greiningum, gagnsæi og ábyrgri stjórnsýslu. Það er lágmarkskrafa.

Framsókn hefur fullan skilning á þeirri krefjandi fjárhagsstöðu sem bærinn stendur frammi fyrir og vill vinna með meirihlutanum að nauðsynlegum aðhaldsaðgerðum. En fjárhagsvandi getur aldrei orðið afsökun fyrir því að veikja þjónustu við viðkvæmustu íbúa sveitarfélagsins án þess að sýna fram á afleiðingarnar. Það skiptir því öllu máli að útfærslan sé fagleg, vel ígrunduð og að áhrif á þjónustu við bæjarbúa liggi fyrir.

Það sem gerir málið enn alvarlegra er að meirihlutinn virðist ekki treysta sér til að leggja fram þau gögn sem myndu annað hvort staðfesta eða hrekja eigin fullyrðingar. Ef raunverulega liggur fyrir faglegt mat sem sýnir að þjónustan skerðist ekki ætti að vera einfalt að birta það.

Þangað til það er gert er erfitt að komast að annarri niðurstöðu en þeirri að hér fari ekki saman hljóð og mynd.

Bæjarstjóri segir að þjónustan verði óbreytt og að uppsagnir hafi ekki áhrif á framlínufólk. Aðgerðir hans beinast hins vegar að starfsfólkinu sem veitir hana. Bæjarbúar eiga rétt á betri svörum.

Jóhanna Erla Guðjónsdóttir

Höfundur er félagsráðgjafi og fulltrúi Framsóknar í Hafnarfirði.

Greinin birtist upphaflega á Vísi.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress