Betri Skagaströnd – rjúfum kyrrstöðuna
Branches

Ég heiti Guðlaugur Siggi Hannesson og býð mig fram í 2. sæti á lista Framsóknar og óháðra í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Í lok apríl 2021 þá flutti ég ásamt fjölskyldu minni á Skagaströnd frá Kópavogi. Ég starfa sem lögfræðingur hjá Greiðslustofu Vinnumálastofnunar. Kann ég afskaplega vel við mig ég hér á Ströndinni og við höfum komið okkur vel fyrir í Mýrinni. Okkur fjölskyldunni líður vel hér á Skagaströnd. Hér eru engir umferðahnútar og kyrrðin er allsráðandi.
Það eru þó ýmsir hlutir sem má betur gera í málefnum Skagastrandar. Fækkun íbúa er grafalvarleg þróun og þarf ný sveitarstjórn sem mun taka við eftir langa valdatíð H-listans að leita allra leiða að snúa við þeirri neikvæðu þróun sem hefur verið á sl. árum. Það er ekki einfalt mál og allir sem búa á Skagaströnd þurfa að snúa bökum saman og vinna í sameiningu að því að leita leiða og standa saman um að efla atvinnulíf á svæðinu og laða að nýja íbúa. Það hjálpar líka að taka vel á móti fólki sem sest hér að og kynna fyrir þeim hvað Skagaströnd og nágrenni hefur að bjóða.
Fráfarandi sveitarstjórn í forsvari H-listans hefur að meginstefnu til mótað þá framtíðarsýn svæðisins að opna baðlón og koma upp 60 herbergja hóteli. Þessi framtíðarsýn er góðra gjalda verð en er hún raunsæ? Heitt vatn er af skornum skammti á svæðinu en eitt af því sem hefur verið forsenda fyrir byggingu og rekstri flest allra baðlóna er ódýrt og nægjanlegt heitt vatn. Þá hefur verið á teikniborðinu að opna hótel á höfninni í gömlu síldarverksmiðjunni. Á sama tíma eru tveir veitingastaðir á svæðinu til sölu og jafnframt Salthúsið – eina gistiheimilið á staðnum.
Við getum spurt okkur hvort sú kyrrstaða sem hefur verið í uppbyggingu atvinnutækifæra og nýsköpunar á sl. árum megi að einhverju leyti rekja til þess að það hafi hreinlega verið beðið eftir að eitthvað gerist í baðlóns málum. Slík staða er óviðunandi og ef ekkert verður spyrnt við fótum á komandi árum er útlitið ekki gott.
Ráðast þarf í átak í að koma skriði í atvinnumál á staðnum með öllum tiltækum ráðum í samvinnu við íbúa og fyrirtækja. Þá þarf að endurskoða skipan og virkni nefnda en það er alvarlegt mál ef atvinnu og ferðamálanefnd hefur ekki verið starfrækt síðan 2019.
Sóknartækifærin eru til staðar – sækjum þau
Á komandi kjörtímabili þarf að ráðast í stórátak í að efla tekjustofna sveitarfélagsins. Gera þarf átak í kynningu á lausum lóðum í sveitarfélaginu hvort sem um iðnaðar- eða húsnæðislóðir er að ræða. Markaðssetja þarf höfnina betur og fara í markaðskönnun á fýsileika þess að koma á fót farþegaflutningum yfir Húnaflóa milli Skagastrandar og Stranda. Horfa þarf til sambærilegra svæða í Noregi sem hafa góða reynslu á farþegaflutningum um firði og flóa. Sveitarstjórn og sveitarstjóri verða að ráðast í skipulagða og öfluga hagsmunabaráttu fyrir sveitarfélagið og vera með allar klær úti til að efla atvinnu- og mannlíf á svæðinu. Stofna þarf til tengsla við fyrirtæki sem kynnu að hafa áhuga á slíkum verkefnum. Ekki er hægt að treysta á að verkefnin mun koma að himnum ofan. Það er ekki einfalt mál en staðsetning Skagastrandar hefur svo sannarlega upp á mikið að bjóða. Almennt veit fólk sem býr annars staðar á Íslandi fátt um Skagaströnd og hvað svæðið býður uppá. Engir aðrir en íbúar á Skagaströnd geta breytt því.
Upplýsingaflæði – gerum betur
Í litlu samfélagi skiptir máli að upplýsingaflæði frá sveitarstjórn og sveitarstjóra sé í góðu lagi. Fáir íbúafundir hafa verið haldnir á síðasta kjörtímabili og oft óljóst hvert sveitarfélagið sé og skuli stefna. Heimasíða Sveitarfélags Skagastrandar býr yfir takmörkuðum upplýsingum um þá þjónustu sem íbúum og ferðamönnum stendur til boða. Í tæknivæddum stafrænum heimi er lítið mál að gera miklu betur í þessum efnum en til þess þarf vilja og áhuga á að upplýsa íbúa.
Tökum vel á móti nýjum íbúum
Sem innfluttur Skagstrendingur þá vill ég að tekið sé betur á móti þeim sem flytja í okkar litla samfélag. Við getum gert það t.d. með því að bjóða nýjum íbúum upp á frítt árskort í ræktina og sundlaugina ásamt bókasafnkorti. Þannig tökum við vel á móti nýju fólki sem vill setjast hér að og kynnum bæinn okkar í leiðinni.
Leikskólagjöld
Sú sveitarstjórn sem tekur við á nýju kjörtímabili þarf að taka til skoðunar innheimtu leikskólagjalda. Sveitarfélagið má ekki sofna á verðinum en miklar breytingar hafa orðið á hvernig sveitarfélög á landsvísu innheimta leikskólagjöld. Svo að barnafjölskyldur sjái hag í að flytja á Skagaströnd verður sveitarfélagið að endurskoða leikskólagjöld. Við í Framsókn og óháðum viljum koma til móts við barnafjölskyldur og bjóða upp á gjaldfrjálsan 6 klukkustunda leikskóla – eins og þekkist orðið viða.
Einföldum líf bæjarbúa
Sem íbúi á Skagaströnd hef ég aldrei skilið af hverju innheimta fasteignagjalda er með þeim hætti að greiðandi neyðist til að greiða fasteignagjöldin í 8 jafnháum greiðslum. Við í Framsókn og óháðum viljum bjóða upp valkosti hvernig þú sem íbúi greiðir þín fasteignagjöld. Kerfið á ekki að þvælast fyrir íbúum heldur á að það að vinna með þeim. Þú sem íbúi átt að geta valið hvort þú greiðir fasteignagjöldin í formi eingreiðslu gegn 3% staðgreiðsluafsláttar.
Fasteignaskattar á íbúa Skagastrandar munu ekki hækka
Fasteignaverð í sveitarfélaginu hefur hækkað mjög á síðustu árum sem er jákvæð þróun. Fylgifiskurinn eru hærri fasteignagjöld ef álagningarprósentan er óbreytt. Við erum þeirrar skoðunar að íbúar eiga ekki að bera stóraukinn kostnað af hækkun fasteignaverðs. Í dag eru fasteignargjöld af íbúðarhúsnæði á Skagaströnd 0,48% af álagningarstofni en í Húnabyggð eru fasteignagjöld 0,45% af álagningarstofni. Við teljum að fullt tilefni sé til að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði strax í haust til samræmis við það sem gerist í nágrannasveitarfélögum. Tryggjum að álögur á íbúa séu í samræmi við veitta þjónustu!
Næstu fjögur ár eru gríðarlega mikilvæg fyrir framtíð Skagastrandar. Allir sem vettlingi geta valdið verða leggja sitt af mörkum til að rjúfa þá kyrrstöðu sem hefur ríkt hér allt of lengi.
Við óskum eftir þínum stuðningi í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí. Setjum X við B fyrir betri Skagaströnd. Framsókn og óháðir.



