Framboðslisti Framsóknar í Árborg 2026–2030 samþykktur

Framboðslisti xB í Árborg fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var kynntur og samþykktur einróma á fjölmennum félagsfundi Framsóknarfélags Árborgar í kvöld.

Á listanum er breiður og öflugur hópur fólks með fjölbreytta reynslu úr atvinnulífi og samfélagi Árborgar. Þar er fólk úr ólíkum áttum samfélagsins sem sameinast um vilja til að leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar sveitarfélagsins.

Reynslan á listanum er mikil. Tveir af núverandi bæjarfulltrúum Framsóknar halda áfram á listanum og þar að auki er þar að finna fólk sem hefur starfað í sveitarstjórnum og á Alþingi, ásamt nýju fólki sem kemur inn með ferska sýn.

  1. Matthías Bjarnason, tæknimaður og varabæjarfulltrúi

  2. Ellý Tómasdóttir, bæjarfulltrúi, verkefnastjóri og forvarnarfulltrúi

  3. Arnar Freyr Ólafsson, bæjarfulltrúi, framkvæmdastjóri og fyrirtækjaráðgjafi

  4. Guðrún Rakel Svandísardóttir, skólastjóri

  5. Magnús Benediktsson, rekstrarstjóri

  6. Kristín Júlía Hannesdóttir, sjúkraþjálfari

  7. Árdís Lilja Gísladóttir, grafískur hönnuður 

  8. Guri Hilstad Ólason, ráðgjafi og starfsmaður sendiráðs

  9. Óskar Hróbjartsson, fangavörður

  10. Ólafur Már Ólafsson, húsasmiður og bóndi

  11. Ólafía Ingólfsdóttir (Lóa), eldriborgari

  12. Þorvaldur Guðmundsson, umsjónamaður fasteigna hjá HSU

  13. Böðvar Arnarsson, húsasmiður í meistara- og slökkviliðsnámi

  14. Erna Guðjónsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur

  15. Gissur Jónsson, starfsmaður Umf. Selfoss

  16. Iða Marsibil, framkvæmdastjóri

  17. Guðmundur Heiðar Ágústsson, slökkviliðs og sjúkraflutningamaður

  18. Sólveig Þorvaldsdóttir, bygginga- og jarðskjálftaverkfræðingur

  19. Ragnar Geir Brynjólfsson, organisti og fyrrverandi kerfisstjóri

  20. Gils Einarsson, fyrverandi formaður Suðurlandsdeildar VR

  21. Kolbrún J. Erlendsdóttir, formaður Suðurlandsdeildar VR og formaður Framsóknarfélags Árborgar

  22. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, lögfræðingur og fyrrverandi þingmaður