Framboðslisti Framsóknar í Borgarbyggðar samþykktur
Notifications

Listi Framsóknar í Borgarbyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps var samþykktur á fjölmennum félagsfundi í Landnámssetrinu í kvöld.
Á liðnu kjörtímabili hefur Framsókn verið í hreinum meirihluta í sveitarstjórn Borgarbyggðar.
Stórátak hefur verið gert í skipulagsmálum, framboð atvinnu- og íbúðalóða hefur stóraukist, uppbygging íþróttamannvirkja eru í fullum gangi og farið var af stað í nauðsynlegar framkvæmdir.
Oddviti listans er Davíð Sigurðsson. Davíð býr í Miðgarði í Stafholtstungum ásamt eiginkonu sinni, Sigríði Arnardóttur grunnskólakennara við grunnskóla Borgarness, og þremur sonum þeirra. Davíð er sauðfjárbóndi, hrossaræktandi og vélvirki en hann rak um 10 ára skeið dekkjaverkstæði og smurstöð í Borgarnesi. Hann hefur undanfarin 8 ár setið í sveitarstjórn Borgarbyggðar og síðustu 4 ár sem formaður byggðarráðs ásamt því að gegna formennsku í skipulags og byggingarnefnd.
„Ég er spenntur fyrir komandi kjörtímabili. Framsókn hefur komið í gegn stórum og nauðsynlegum framkvæmdum á tímabilinu og við ætlum okkur að halda áfram á þeirri vegferð. Það er frábært að sjá hversu margir eru tilbúnir til þess að taka þátt í því með okkur. Tækifærin eru í Borgarbyggð.
Listann skipa:
1. Davíð Sigurðsson - Formaður byggðarráðs Borgarbyggðar og bóndi
2. Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir - Lögfræðingur
3. Jón Eiríkur Einarsson - Oddviti Skorradalshrepps og bóndi
4. Guðdís Jónsdóttir - Bóndi og ritari í grunnskólanum í Borgarnesi
5. Jón Theodór Jónsson - Framkvæmdastjóri og yfirþjálfari knattspyrnudeildar Skallagríms
6. Ásdís Helga Bjarnadóttir - Umhverfis- bú- og ferðamálafræðingur
7. Kristín Jónsdóttir - Hreppsnefndarfulltrúi og vörubílstjóri
8. Valdimar Reynisson - Skógfræðingur hjá Yggdrasil Carbon
9. Hafdís Jóhannsdóttir - Deildafulltrúi rekstrarsviðs hjá LbhÍ
10. Inga Berta Bergsdóttir - Atvinnurekandi og nemi
11. Bryndís Birgisdóttir - Eigandi og yfirþjálfari Metabolic Borgarnesi
12. Ásdís Lind Vigfúsdóttir - Nemi
13. Egill Gunnarsson - Umsjónarmaður hveititilrauna hjá Lbhí
14. Kristín Erla Guðmundsdóttir - Nefndarmaður og húsmóðir
15. Sigurþór Kristjánsson - Bakarameistari og tónlistarkennari
16. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir- Ritari Framsóknar og bóndi
17. Bergur Þorgeirsson - Forstöðumaður Snorrastofu
18. Guðveig Lind Eyglóardóttir - Forseti sveitarstjórnar


