Framboðslisti Framsóknar í Fjarðabyggð samþykktur

Framboðslisti Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð var samþykktur samhljóða á aðalfundi félagsins sem fram fór í kvöld. Við erum stolt af þeim lista sem samþykktur var en á honum er flottur hópur fólks með fjölbreytta reynslu úr atvinnulífi og samfélagi sveitarfélagsins.

Hlökkum til samtals og samstarfs 💚

Listinn er sem hér segir

  1. Þuríður Lillý Sigurðardóttir, bóndi og bæjarfulltrúi

  2. Birgir Jónsson, skólameistari og bæjarfulltrúi

  3. Helga Rakel Arnardóttir, skrifstofustjóri og sjúkraflutningamaður

  4. Sigurjón Andrés Jónasson, álversstarfsmaður

  5. Bjarney Birta Bergsdóttir, háskólanemi

  6. Guðbjartur Hjálmarsson, húsasmíðameistari

  7. Sigrún Eva Grétarsdóttir, námsráðgjafi

  8. Björgvin Karl Gunnarsson, knattspyrnuþjálfari

  9. Tinna Hrönn Smáradóttir, iðjuþjálfi

  10. Alma Eiðsdóttir, hársnyrtir

  11. Vilberg Marinó Jónasson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður

  12. Margrét Sigfúsdóttir, kennari og ferðaþjónustubóndi

  13. Jórunn Dagbjört Jónsdóttir, bóndi

  14. Halldór Bjarneyjarson, kennari og knattspyrnuþjálfari

  15. Linda María Emilsdóttir, stuðningsfulltrúi

  16. Sara Rut Mellado, háskólanemi

  17. Kristján Guðni Sævarsson, nemi

  18. Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga