Góð samvinna skilar árangri – og þannig viljum við halda áfram

Nú þegar nýtt kjörtímabil er framundan stilla Framsókn og óháðir upp öflugum og fjölbreyttum lista. Á listanum eru reynslumiklir bæjarfulltrúar sem þekkja vel þau verkefni sem bíða sveitarfélagsins, en einnig ungt og metnaðarfullt fólk úr öllum kjörnum sem vill leggja sitt af mörkum til að byggja upp samfélagið okkar til framtíðar.

Þessi blanda reynslu og nýrra krafta er styrkur. Hún tryggir bæði stöðugleika og nýjar hugmyndir og hún endurspeglar fjölbreytt samfélag Ísafjarðarbæjar.

Þótt Framsókn hafi verið í minnihluta í upphafi síðasta kjörtímabils ákváðum við strax að leggja okkar af mörkum til að skapa betri starfsanda í bæjarstjórn. Við lögðum áherslu á opið samtal, málefnalega nálgun og samstarf þvert á flokka, með hagsmuni sveitarfélagsins í forgrunni. Það hefur skilað sér í öflugra samstarfi, betra starfsumhverfi og meiri athygli á þau mál sem raunverulega skipta íbúa máli.  Eitt mikilvægasta verkefni núverandi kjörtímabils var samstaða um fjárhagsleg markmið sveitarfélagsins.  Með því verkefni var lagður grunnur að góðum rekstri og er mikilvægt að halda þeim markmiðum áfram.

Síðasta kjörtímabil hefur sýnt okkur eitt mikilvægt: þegar við vinnum saman næst árangur. Á síðustu árum hefur samstarf bæjarfulltrúa einkennst af meiri virðingu, opnara samtali og ríkari vilja til að leita sameiginlegra lausna. Það er ekki sjálfgefið í sveitarstjórnarmálum  en það skiptir sköpum fyrir samfélag eins og okkar.

Eitt er víst að það er sama hvaðan gott kemur. Fyrir sveitarfélag sem allt of oft hefur búið við pólitískt argaþras og ágreining var þetta mikilvæg breyting. Í stað þess að festast í deilum hefur meiri orka farið í lausnir, uppbyggingu og framþróun. Það er jákvæð þróun sem við eigum að halda í.  Það þýðir ekki að öllu hafi verið tekið þegjandi og hljóðalaust, heldur frekar að úr ágreiningi hafi verið unnið á málefnalegan hátt með hagsmuni sveitarfélagsins í forgrunni.

Fram undan eru fjölmörg tækifæri fyrir Ísafjarðarbæ. Við þurfum að byggja upp enn sterkari innviði, efla atvinnulíf, tryggja betri þjónustu fyrir íbúa og skapa aðstæður þar sem fjölskyldur og fyrirtæki vilja búa og starfa. 

Til þess þurfum við áfram góða samvinnu.

Á næstu vikum mun framboð Framsóknar og óháðra kynna ítarlegar kosningaáherslur fyrir kosningarnar, bæði til skemmri og lengri tíma. Við munum vinna þvert á flokkslínur og taka ákvarðanir með hagsmuni íbúa í fyrirrúmi. Það er sú leið sem Framsókn og óháðir leggja upp með og ætla að fylgja eftir. Með samvinnu, ábyrgð og skýrri framtíðarsýn getum við áfram byggt upp sterkt og gott samfélag í öllu sveitarfélaginu. 

Kristján Þór Kristjánsson bæjarfulltrúi Framsóknar og oddviti Framsóknar og óháðra í komandi sveitarstjórnarkosningum í Ísafjarðarbæ

Elísabet Samúelsdóttir bæjarfulltrúi Framsóknar og skipar 2. sæti Framsóknar og óháðra í komandi sveitarstjórnarkosningum í Ísafjarðarbæ


Greinin birtist fyrst á bb.is 16. mars 2026