Ég flutti í Mosfellsbæinn árið 1995,
hef búið hér síðan og finnst eins og
ég hafi búið hér alla tíð. Mín skoð
un er að gott samfélag verði ekki til
nema bæjarbúar taki þátt og hjálpi
til og tel ég mig hafa lagt mitt fram
við að búa til góðan bæjarbrag á
þessum árum.

Ég steig stærra skref vorið 2022 þegar ég
ákvað að bjóða mig fram til sveitarstjórnar
með góðu fólki í Framsókn. Ég hef ákveð
ið að bjóða aftur fram krafta mína enda
áhugi minn á að starfa fyrir bæinn okkar
óbreyttur. Við Sævar Birgisson bæjarfulltrúi
höfum þó skipt um sæti á listanum og hann
tekið við oddvitasætinu. Við erum í þessu af
hugsjón, fyrir samfélagið, og vinnum áfram
saman af ábyrgð og fagmennsku. Við viljum
halda áfram að efla gagnsæi, lýðræðisleg
vinnubrögð og gott samstarf – alltaf með
hagsmuni Mosfellsbæjar að leiðarljósi. Og
já, ef við fáum keflið aftur eftir kosningar
verður ráðning bæjarstjóra fagleg.
Ég er afar stolt af því sem við
höfum áorkað á kjörtímabilinu.
Mikilvægt er að meirihluti hvers
tíma hugsi lengra en til fjögurra
ára í senn. Sveitarfélag á að byggja
upp með langtímahagsmuni að
leiðarljósi og það höfum við gert.
Stafrænir innviðir, upplýsingaöryggi
og innkaup
Við fórum í stórsókn í uppbyggingu staf
rænna innviða og þjónustu og fjárfestum
verulega í þeim. Um 40 verkefnum er þegar
lokið og hafa þau bætt þjónustu, einfaldað
ferla og sparað tíma. Fjöldi sveitarfélaga
hefur kynnt sér nálgun Mosfellsbæjar. Þá
höfum við styrkt upplýsingatækni, endur
nýjað innviði með áherslu á öryggi og ein
faldað innkaupaferla. Niðurstaðan er betri
yfirsýn, bætt þjónusta og öruggara starfs
umhverfi. Þetta skiptir máli – bæði fyrir
íbúa og rekstur sveitarfélagsins.

LEDið og viðhaldið
Við erum að ljúka við að lýsa bæinn betur
upp – götur, íþróttamannvirki og skóla
húsnæði. Þegar hefur verið skipt út 1.400
af 3.000 lömpum, settir upp 50 rafmagns
kassar og á þessu ári verður farið í stýri
búnað götulýsingar.
Þetta er fjárfesting til framtíðar: minni
orkunotkun, lægri rekstrarkostnaður og
minni viðhaldsþörf. Það er auðveldara og
kannski pólitískt klókara að velja sýnileg
verkefni sem skila hrósi strax, en við völd
um að ráðast í verkefni sem styrkja bæinn
okkar til lengri tíma.
Við höfum einnig lagt mikla áherslu á
viðhald eigna Mosfellsbæjar. Reglulegt
og markvisst viðhald er skynsamleg fjár
festing sem minnkar hættuna á óvæntum
og kostnaðarsömum verkefnum – sem við
höfum því miður fengið að kynnast á kjör
tímabilinu vegna skorts á viðhaldi í for
tíðinni.

Mannauðurinn – hjarta samfélagsins
Ég get ekki lokið þessari grein án þess að
tala um mannauðinn í bænum. Við höfum
heldur betur fjárfest í honum með því
að taka yfir reksturinn á félagsheimilinu
okkar Hlégarði; flutningi félagsstarfs eldri
borgara í Brúarland; styrkingu Bólsins og
með áherslum okkar á Bókasafnið okkar
og Listasalinn. Þá erum við líka nýbúin að
undirrita samning um safn um sögu ullar
iðnaðarins í Álafosskvos. Með því erum við
að varðveita og vekja athygli á sögu svæðis
ins og efla það sem áfangastað.
Ekkert sveitarfélag getur talist framúr
skarandi nema það sinni mannauðnum
vel sem þar býr. Mannauðurinn býr til þau
félagslegu verðmæti sem gera bæ að sam
félagi og ég er stolt af okkar þátttöku í því.

Halla Karen Kristjánsdóttir formaður
bæjarráðs og skipa 2. sæti á lista
Framsóknar.

Greinin birtist fyrst á mosfellingur.is 24. apríl 2026