Hlynur Bæringsson leiðir Framsókn í Garðabæ

Tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista Framsóknar í Garðabæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar var samþykktur einróma á fjölmennum félagsfundi, sem haldinn var á Dæinn í Urriðaholti, fyrr í dag. Hlynur Bæringsson varabæjarfulltrúi og rekstrarstjóri leiðir listann.

,,Ég er afar þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt og er fullur tilhlökkunar til að leiða þennan öfluga og samstillta hóp í kosningunum sem framundan eru” sagði Hlynur Bæringsson er hann ávarpaði félagsmenn á fundinum.

Framboðslisti Framsóknar í Garðabæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí 2026 er þannig skipaður:

1. Hlynur Bæringsson,varabæjarfulltrúi og rekstrarstjóri

2. Anna Margrét Steingrímsdóttir, markaðs-og þjónustustjóri

3. Einar Þór Einarsson, framkvæmdastjóri

4. Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri

5. Inga Amal Hasan, lögfræðingur

6. Sigurður J. Ólafsson, framkvæmdastjóri

7. Hjördís Guðný Guðmundsdóttir, kennari og deildarstjóri

8. Vilhjálmur Halldórsson, rekstrarstjóri og yfirþjálfari

9. Tinna Hemstock, kaupmaður í Garðabæ

10. Markús Pálsson, húsgagnasmiður

11. Elín Jóhannsdóttir, þjónustustjóri

12. Alexander Olsen, lögfræðinemi

13. Bryndís Sveinsdóttir, sálfræðingur

14. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur og fv. bæjarfulltrúi

15. Hera Björk Guðmundsdóttir, nemi í FG

16. Anna Gréta Hafsteinsdóttir, viðskiptafræðingur og markaðsstjóri

17. Ómar Örn Sævarsson, framkvæmdastjóri

18. Anna Lena Halldórsdóttir, grunnskólakennari

19. Stefanía Ólöf Reynisdóttir, leikskólakennari

20. Tara Sól Guðmundsdóttir, háskólanemi

21. Ólöf Sigurbjörg Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri og fv. skólastjóri

22. Úlfar Ármannsson, framkvæmdastjóri