
Spennandi ganga í Grindavík og kaffiboð!
Framsókn í Grindavík, ásamt Benedikt Óskari jarðfræðingi og frambjóðanda flokksins, standa fyrir fjallgöngu upp á varnargarðinn L6 milli Hagafells og Sýlingafells. Ofan af varnargarðinum er gott útsýni yfir Sundhnúkagígaröðina, suður yfir Grindavík og vestur yfir Bláa lónið.
Að lokinni göngunni býður Framsóknarflokkurinn til kaffiboðs á kosningaskrifstofunni í Efstahrauni 32 þar sem frambjóðendur flokksins verða. Kaffiboðið er opið öllum og opnar húsið kl.13:00.
· Mæting kl.12:00 á planinu austan megin við Grindavíkurveginn til móts við hitaveitutankinn við Þorbjörn. Gengið verður af stað um kl.12:10.
· Einnig er hægt að koma á kosningaskrifstofuna Efstahraun 32 kl. 11:45 og sameinast þar í bíla ef staðsetning er óljós
· Áætlað að gangan taki um 1 klst
· Áætluð vegalengd 3,6 km
· Hækkun um 40 m
· Fært öllum sem eiga auðvelt með gang, ekki æskilegt að koma með börn yngri en 8 ára.
· Klæða sig eftir veðri og vera í góðum skóbúnaði.
· Öryggi verður í fyrirrúmi og er búið að taka út gönguleiðina varðandi öryggi. Engar kortlagðar sprungur eru nálægt þeirri gönguleið sem verður farin.
Hittumst þar sem græni punkturinn er:



