Jafnrétti er ekki annað hvort eða ...

News

Jafnrétti á sér margar hliðar. Segja má að jafnrétti snúi að mannréttindum og undanfarin misseri hefur umræða um aukinn hlut kvenna bæði í stjórnmálum og atvinnulífinu almennt verið áberandi. Ákveðið hefur verið að fara í aðgerðir til þess að auka hlut kvenna á þessum sviðum. Einnig hefur verið lögð áhersla á að fjölmiðlar hugi að því að velja viðmælendur af báðum kynjum, það hallar mjög á konur. Þessi tegund jafnréttis fjallar um kynjajafnrétti og ábendingarnar og fyrirhugaðar aðgerðir eru þarfar og vissulega er kominn tími til að bæta úr.

En eins og áður sagði þá á jafnrétti sér margar hliðar og hefur Eygló Harðardóttir ráðherra félagsmála beitt sér markvisst að því að benda á að svo sé. Nýverið fóru fram Vetrarhæfileikarnir í Borgarleikhúsinu með þátttöku hæfileikafólks úr röðum fatlaðra og ófatlaðra einstaklinga og var það réttindavakt Velferðarráðuneytisins sem stóð að leikunum í samstarfi við Geðhjálp, Öryrkjabandalagið og Þroskahjálp. Markmið leikanna var að auka vitund almennings um styrkleika fatlaðs fólks, sem sagt að vekja athygli á fjölbreytileika mannlífsins. Jafnrétti snýst um jafnan rétt allra til þátttöku í samfélaginu.

Ráðherra hefur einnig réttilega bent á að nútíma fjölskyldan sé margbreytileg, ekki sé gefið að hún sé mamma, pabbi börn og bíll heldur eru fjölskyldur í dag margbreytilegar, þær eru af öllum stærðum og gerðum. Tímarnir breytast og samfélagsgerðin einnig og þess vegna var ánægjulegt að heyra í umræðum á Alþingi að Haraldur Einarsson okkar þingmaður gerði það að umtalsefni að endurskoða þyrfti barnalög frá árinu 2003 og þá sérstaklega það ákvæði sem segir að ef foreldrar barns séu hvorki í hjúskap eða í skráðri sambúð við fæðingu þess þá sé það móður að fara með forsjá barnsins. Það er rétt hjá Haraldi, þessu þarf að breyta, það á að ganga á út frá sameiginlegri forsjá barns, það er réttur barnsins. Jafnrétti snýst um að barn eigi rétt á umgegni við báða foreldra sína.

Jafnrétti á sér margar hliðar, það er ekki annað hvort eða.

Anna Kolbrún Árnadóttir, jafnréttisfulltrúi Framsóknar

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress