Jöfnuður mælist mestur á Íslandi en...
Branches

Ein mesta auðlegð íslensks samfélags felst í jöfnuði og félagslegum hreyfanleika. Að börn geti látið drauma sína rætast óháð efnahag foreldra sinna og að dugnaður, hæfileikar og menntun skapi fólki tækifæri til betra lífs. Í þessu felst kjarni þeirrar frjálslyndu félagshyggju sem Framsóknarflokkurinn hefur byggt á í 110 ár. Eysteinn Jónsson, fv. formaður flokksins, lagði ríka áherslu á alhliða framfarir, félagslegt réttlæti og samvinnu ólíkra þjóðfélagshópa. Sú hugsjón á ekki síður erindi við samtímann.
Samkvæmt niðurstöðum lífskjararannsóknar Hagstofunnar kemur fram að tekjujöfnuður hér á landi er mikill. Jöfnuður er mældur með Gini-stuðli og því lægri sem hann mælist, því meiri jöfnuður. Árið 2025 mældist stuðullinn 22,4 á Íslandi og lægstur Evrópuríkja. Árið 2026 mælist stuðullinn hins vegar 23,6 og hefur ekki verið hærri frá árinu 2021. Þótt hækkunin sé innan tölfræðilegra skekkjumarka gefur þróunin tilefni til umhugsunar. Athygli vekur að án félagslegrar tilfærslu væri stuðullinn hærri á Íslandi eða 30,1. Það undirstrikar mikilvægi tilfærslukerfisins við að jafna lífskjör.
Við í Framsókn höfum greint samanlögð áhrif fyrirhugaðra gjalda- og skattahækkana og breytinga á tilfærslukerfinu í fjárlagafrumvarpinu á mismunandi heimili. Á vefnum utreikningur.is getur fólk kynnt sér áætluð áhrif þeirra á eigin fjárhag. Niðurstöðurnar sýna að hlutfallsleg byrði getur orðið mun þyngri hjá tekjulægri fjölskyldum en þeim tekjuhærri.
Það er mikilvægt að ná jafnvægi í ríkisfjármálum, draga úr verðbólgu og skapa forsendur fyrir lægri vöxtum. Leiðirnar að þeim markmiðum skipta hins vegar ekki síður máli en markmiðin sjálf. Fyrirhugað afnám vaxtabóta og hækkanir krónutölugjalda renna stoðum undir þær áhyggjur að efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar muni auka ójöfnuð. Með Heimilissátt Framsóknar höfum við lagt til að hækkanir krónutölugjalda verði takmarkaðar við 2,5% og að staðinn verði vörður um vaxtabætur.
Velgengni lýðræðissamfélaga byggist á því að góður jöfnuður ríki. Í bók Darons Acemoglus, nóbelsverðlaunahafa í hagfræði, What Happened to Liberal Democracy?, rekur hann hvernig frjálslynd lýðræðissamfélög blómstra þegar ávinningur efnahagslegra framfara skilar sér til alls samfélagsins. Hugmyndafræði Framsóknar byggist á þeirri sannfæringu að efnahagslegar framfarir og félagslegt réttlæti eigi samleið. Öflugt atvinnulíf, gott menntakerfi og markviss félagshyggja eru samverkandi þættir í farsælu samfélagi. Jöfnuður á Íslandi er ekki tilviljun heldur afrakstur þeirra ákvarðana sem fyrri kynslóðir tóku. Það er ekki nóg að fagna þeim árangri. Okkar ábyrgð er að varðveita hann og tryggja að komandi kynslóðir njóti sömu tækifæra til framfara og farsældar.
Höfundur er formaður Framsóknarflokksins.
Höfundur: Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 26. nóvember 2026


