Framtíðin verður ekki byggð í Excel-skjali
Branches

Framtíðin verður ekki byggð í Excel-skjali
Stjórnmál eiga ekki eingöngu að snúast um næstu fjárlög, næstu kosningar eða næstu hagræðingaraðgerðir. Þau eiga að snúast um hvernig samfélag við viljum byggja upp og hvað við ætlum að skilja eftir fyrir næstu kynslóðir.
Mér er hugleikið í hvaða átt samfélagið okkar er að þróast. Hvaða verðmæti við leggjum áherslu á, hvernig við tökum ákvarðanir og hvort við horfum nægilega langt fram á veginn.
Í mínum huga verður gott samfélag ekki eingöngu mælt í krónum og aurum heldur í lífsgæðum fólks, öryggi, heilbrigði, samheldni og þeim tækifærum sem við sköpum komandi kynslóðum.
Því manneskjan á að vera á undan Excel-skjalinu.
Í umræðu um rekstur og skipulag opinberrar þjónustu er eðlilegt að horft sé til hagræðingar og skilvirkni. En við megum ekki missa sjónar á því fyrir hvern þjónustan er og hvaða tilgangi hún þjónar.
Sem dæmi má nefna hjúkrunarheimili. Þau eru ekki einfaldlega rekstrareiningar heldur heimili fólks, vinnustaðir og mikilvægur hluti af nærsamfélaginu. Þegar breytingar eru gerðar á rekstri þeirra eða stjórnun þarf að horfa til fleiri þátta en fjárhagslegs ávinnings.
Sama á við um skóla, heilbrigðisstofnanir, almannatryggingakerfið og aðra grunnþjónustu samfélagsins. Ákvarðanir sem virðast hagkvæmar á blaði geta haft allt önnur áhrif þegar þær koma til framkvæmda.
Það er nefnilega ekki allt sem skiptir máli mælanlegt í Excel-skjali.
Það er mín sannfæring að ákvarðanir eigi að vera teknar eins nálægt þeim sem þær varða og kostur er. Stjórnun þarf að vera nálægt fólkinu.
Verðmæt þekking býr hjá fólkinu sem sinnir daglegum störfum, þekkir aðstæður, þekkir söguna og hefur skilning á þörfum síns samfélags. Sú þekking þarf að hafa vægi þegar ákvarðanir eru teknar.
Miðstýring getur í ákveðnum tilvikum skilað hagræðingu, en hún má ekki verða markmið í sjálfu sér. Þegar stjórnun er færð sífellt fjær starfseminni í nafni sparnaðar skapast hætta á að tengslin við raunveruleikann á gólfinu veikist.
Góð stjórnun byggist að mínu mati á trausti, samtali, nærveru og gagnkvæmri virðingu. Hún felst ekki síst í því að treysta fólki til að axla ábyrgð í sínu nærumhverfi.
Svo er það blessaða landsbyggðin. Landsbyggðin er ekki útgjaldaliður. Þar skapast verðmæti!
Ég vil sjá samfélag þar sem landsbyggðin fær að vaxa og dafna á eigin forsendum. Þar sem ekki er eingöngu horft til þess hvernig megi reka þjónustu með sem minnstum tilkostnaði og mestri hagræðingu, heldur einnig hvaða verðmæti hún skapar fyrir samfélagið í heild.
Það skiptir máli hvar störfin verða til, hvar fagþekkingin byggist upp og hvar ákvarðanirnar eru teknar.
Öflug nærsamfélög þurfa ekki aðeins þjónustu heldur einnig sjálfstæði, ábyrgð og tækifæri til að móta eigin framtíð.
Í búsetu á landsbyggðinni felast líka mikil lífsgæði. Nálægð við náttúruna, rými til athafna og sterk samfélagstengsl geta verið nærandi fyrir bæði líkama og sál. Börn fá líka tækifæri til að þroska með sér náttúrulæsi, kynnast hringrás náttúrunnar og öðlast sjálfstæði og verklega færni í gegnum leik og daglegt líf.
Þetta eru verðmæti sem verða ekki mæld í krónum og aurum en skipta máli fyrir velferð okkar, þroska og lífsgæði. Við þurfum að horfa til þeirra þegar við tökum ákvarðanir um framtíð byggða landsins.
Byggðastefna snýst ekki eingöngu um að halda byggð. Hún snýst um að skapa samfélög þar sem fólk hefur raunverulegt val um hvar það býr, starfar, elur upp börnin sín og ver ævikvöldinu.
Ábyrgð okkar gagnvart næstu kynslóð er því töluverð!
Við eigum að fara vel með opinbert fé. Um það efast ég ekki. En ábyrg fjármálastjórn felst líka í því að horfa lengra en til næstu áramóta og meta langtímaáhrif þeirra ákvarðana sem við tökum.
Við verðum að spyrja okkur hvort sá sparnaður sem við sækjumst eftir í dag geti orðið að samfélagslegum kostnaði morgundagsins.
Það tekur tíma að byggja upp sterk samfélög, skapa traust og rækta fagþekkingu. Þess vegna tel ég mikilvægt að við metum vel hvað við kunnum að missa þegar við breytum því sem þegar hefur verið byggt upp.
Ég vil skilja eftir samfélag þar sem mannleg verðmæti hafa vægi. Þar sem fólk hefur áhrif á sitt nærumhverfi, þekkingu þess er treyst og búseta ræður ekki möguleikum þess til góðs lífs.
Fyrir mér snýst því pólitíska hugsjónin meðal annars um samvinnu, jafnræði, samfélagslega ábyrgð og trú á kraftinn sem býr í fólkinu sjálfu.
Við eigum ekki aðeins að spyrja hvað við getum sparað í dag, heldur hvað við getum byggt upp til framtíðar.
Því þegar upp er staðið verður arfleifð okkar ekki eingöngu mæld í því hversu miklu okkur tókst að spara, heldur í því hvers konar samfélag við skildum eftir.
Eydís Inga SIgurjónsdóttir
Oddviti Framsóknar á Skagaströnd



