Jöfnun húshitunarkostnaðar

News

Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður, ræddi húshitunar- og rafmagnskostnað í dreifbýli á Alþingi í síðustu viku. En fram er komið frumvarp frá iðnaðar- og viðskiptaráðherra er miðar að því að jafna dreifikostnað á raforku í hinum dreifðu byggðum landsins. „Það er vel og vil ég þakka hæstvirtum ráðherra fyrir það. Frumvarpið er nú til meðferðar í þinginu og bíður 2. umræðu,“ sagði Ásmundur Einar.

„Annað mál sem er gríðarlega mikilvægt snýr að jöfnun húshitunarkostnaðar á köldum svæðum. Það er nefnilega svo að vítt og breitt um landið í hinum dreifðu byggðum búa ekki allir við það að geta kynt hús sín með heitu vatni á jafn hagkvæman hátt og margir þekkja á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Þetta hefur í för með sér gríðarlegan kostnað fyrir þá einstaklinga, fyrir þau fyrirtæki og fjölskyldur sem búa á þessum svæðum,“ sagði Ásmundur Einar.

Báðir stjórnarflokkarnir kveða skýrt á um í flokksþings- og landsfundarályktunum sínum að það skuldi jafna húshitun á köldum svæðum. Sjálfstæðimenn sögðu á landsfundi: „Gengið verði til tafarlausra aðgerða til þess að lækka húshitunarkostnað þar sem hann er mestur.“ Og Framsóknarmenn sögðu: „Lagt verði á sérstakt jöfnunargjald sem verði notað til að greiða niður húsnæðiskostnað og flutningskostnað á raforku með það að leiðarljósi að jafna kostnað við húshitun á landsvísu.“ Loks segir í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar: „Unnið verður að jöfnun raforku- og húshitunarkostnaðar.“

Þrátt fyrir þetta hefur iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Ragnheiður E. Árnadóttir, ekki enn lagt fram frumvarp um jöfnun á dreifikostnaði raforku.

 

PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress