
Hann Benedikt kemur ferskur inn í fimmta sætið hjá okkur í Framsókn, fertugur bæði og fróður. Hvað eru mörg F-í því? Svo er Benedikt er líka jarðfræðingur, eitthvað sem ætti nú að nýtast okkur vel í komandi ævintýrum!
Nafn: Benedikt Óskar Steingrímsson
Aldur: Fertugur
Starf: Jarðfræðingur hjá Völubergi, fyrirtæki sem ég stofnaði ásamt tveimur öðrum jarfræðingum árið 2024
Fjölskylduhagir: Sambýliskona mín er Hrefna Magnúsdóttir, saman eigum við tvö börn, Steingrím Óskar f.2020 og Unu f.2025.
Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Grindavík í einn dag, hvað myndir þú gera?
Bæta og auka raforkuöryggi í bænum, tryggja örugga höfn, klára skipulag á nýjum miðbæ og tvöfalda Grindavíkurveg.
Hvar sérð þú Grindavík eftir fjögur ár?
Að það búi 2000 manns af duglegu kjarna fólki í bænum og að almennt þjónustustig sé orðið gott. Atvinnulíf blómstrar og íbúar sameinist um að gera Grindavík betri.
Topp fimm:
Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi: Halla Hrund Logadóttir
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Fréttir
Uppáhalds hljómsveit: Ný dönsk
Uppáhalds staður í Grindavík: Þorbjörn
Kynningin birtist fyrst á facebook síðu Framsóknar í Grindavík 6. apríl 2026


