Kynning á frambjóðanda: Björg Eyþórsdóttir

The people

Nafn: Björg Eyþórsdóttir

Aldur: 37 ára

Starf: Hjúkrunarfræðingur/framhaldsskólakennari

Fjölskylduhagir: Fjögur börn, einn kall og einn köttur


Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Múlaþingi í einn dag, hvað myndir þú gera? 


Með allan peninginn í vasanum líka? Gera óaðfinnanlega íþróttaaðstöðu þar sem allir aldurshópar geta notið sín á sínum forsendum og aðlaga samfélagið betur að þörfum barna.



Hvar sérð þú Múlaþing eftir fjögur ár? 

Framsækið barnvænt vaxandi samfélag 


Topp fimm:

Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi: 

Jónína Brynjólfsdóttir 

Uppáhalds lið í ensku: 

Sko, ég hef lágmarksskoðanir þar en mér yrði sagt upp sem móður ef ég segði eitthvað annað en Liverpool. 

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: 

Gísli Marteinn alla daga alltaf! 🫶 (já ég er 100 ára)


Uppáhalds hljómsveit / tónlistarmaður: 

Una Torfa og Herra Hnetusmjör (já ég er augljóslega líka 15 ára)


Uppáhalds staður í Múlaþingi: 

Húsið mitt og við Lagarfljótið 🤍