Kynning á frambjóðanda: Guðmundur Björnsson Hafþórsson
The people

Nafn: Guðmundur Björnsson Hafþórsson
Aldur: Fæddur 1975, verð því 51 árs í haust
Starf: Eldvarnareftirlitsmaður/Slökkviliðsmaður hjá Slökkviliði Múlaþings
Fjölskylduhagir: Giftur Lísu Leifsdóttur og eigum við 2 börn, Elísabet Bóel fædd 2011 og Alexander Hafþór sem er fæddur 2016
Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Múlaþingi í einn dag, hvað myndir þú gera?
Ég myndi henda upp knatthöll til íþróttaiðkunar án þess að spyrja kóng né prest á methraða!
Hvar sérð þú Múlaþing eftir fjögur ár?
Sveitarfélag sem verður eftirsóknarvert að búa í.
Topp fimm:
Fótbolti, Golf, Píla, Kaffi og Collab, ekkert endilega í þessari röð samt – misjafnt eftir dögum.
Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi:
Ívar Karl Hafliðason – by far!
Uppáhalds lið í enska:
Liverpool
Uppáhalds sjónvarpsþáttur:
Ég er mikill aðdáandi af þáttum sem framleiddir eru á norðurlöndum, helst glæpatengt dót – ég er A týpa og á það til að detta í 1 – 2 þætti áður en aðrir fjölskyldumeðlimir vakna. En ætli Fargo seríurnar séu ekki svona heilt yfir uppáhalds.
Uppáhalds hljómsveit / tónlistarmaður:
Það var Radiohead, þangað til síðastliðinn desember. Konan gaf mér miða á tónleika í Köben í fimmtugsgjöf en Thom Yorke ákvað svo að fá heiftarlega pest og frestaði 2 tónleikum þar – mínir tónleikar voru aðrir þeirra. Heilt yfir hlusta ég mikið á tónlist, bæði erlenda sem innlenda flytjendur.
Uppáhalds staður í Múlaþingi:
Sólpallurinn heima hjá mér, af því það er alltaf gott veður á Egilsstöðum!


