Kynning á frambjóðanda: Hjalti Þór Vignisson


Bakgrunnur

Það má segja að ég sé Hornfirðingur í húð og hár.  Er fæddur á Höfn í janúar 1978 og ólst upp í Nesjum og á Mýrum.  Móðurfjölskyldan á djúpar rætur í Nesjunum og föðurfjölskyldan er frá Reykjavík. Hef gaman af margs konar útivist eins og fjallgöngum, skíðum, hjólreiðum og ýmsu öðru.  Ég er kvæntur Guðrúnu Ingólfsdóttur sem ég á fjögur börn með, á aldrinum 12-23 ára.


Starfsreynsla

Eftir nám í Reykjavík og Danmörku rétt eftir aldamót, fluttumst við Guðrún til Hafnar.  Samhliða námi hafði ég starfað við Háskóla Íslands við rannsóknir.  Þegar heim var komið hóf ég störf í ráðhúsi Hornafjarðar, fyrst við stjórnsýslu- og menningarmál og varð síðar ráðinn bæjarstjóri. 

Árið 2013 hóf ég störf við sölu og útflutningi á sjávarafurðum hjá Iceland Pelagic á Höfn, fór síðar yfir á skrifstofu Skinneyjar -Þinganess en síðustu fimm árin hef ég gegnt stöðu framkvæmdastjóra Stormar ehf, sem selur og flytur út bolfiskafurðir.  Stormar er í eigu fjögurra íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja.  Stærsta verkefnið undanfarin ár var stofnun og rekstur dótturfélags í Frakklandi sem ég hef veitt forstöðu.  

Í æsku og á unglingsárum fékk ég að taka þátt í margs konar störfum tengdum búskap, ferðaþjónustu, byggingarvinnu og verslun.

Félagsstörf

Í gegnum tíðina hef ég gegnt ýmis konar félags- og nefndarstörfum. Til a[ mynda hef ég setið í aðalstjórn Sindra, í stjórn og svæðisráði Vatnajökulsþjóðgarðs, í stjórn sveitarfélaga á köldum svæðum, starfshópi til að undirbúa tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks og starfshópi til að lækka og jafna húshitunarkostnað.


Áhugi á stjórnmálum



Áhugi á stjórnmálum hefur fylgt mér nánast frá fyrstu tíð enda kynntist ég snemma störfum stjórnmálamanna í gegnum setu afa á Alþingi.  Málefni sveitarfélagsins hafa alla tíð verið mér hugleikinn.  


Framboðslisti Framsóknar og stuðningsmanna þeirra samanstendur af hæfileikaríku fólki með ólíkan bakgrunn.  Við viljum vinna að breiðri sátt um stórframkvæmdir á vegum sveitarfélagsins. Við viljum bæði hlúa að vexti atvinnulífs og samfélags í breiðum skilningi.

Við hlökkum til kosningabaráttunnar og samtalsins við íbúa og aðra frambjóðendur í aðdraganda hennar.

Hjalti Þór Vignisson Bæjarstjóraefni og oddviti Framsóknar og stuðningsmanna






The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress