Kynning á frambjóðanda: Þórey Birna Jónsdóttir
The people

Nafn: Þórey Birna Jónsdóttir
Aldur: 43
Starf: Sauðfjárbóndi
Fjölskylduhagir: Gift Sigmari Daða Viðarssyni. Við eigum tvo unglinga, Ágúst Braga ‘08 og Snærós Örnu ‘12
Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Múlaþingi í einn dag, hvað myndir þú gera?
Ég myndi hafa:
- Tómstundarútu sem skilaði börnum sem búa í dreifbýlinu til síns heima eftir tómstundir dagsins.
- Opið í Nýung fyrir miðstig þannig að krakkar úr öllum skólum á Héraði eigi sameiginlega opnun tvisvar til þrisvar í viku.
- Samræmda stundatöflu fyrir alla grunnskóla á Héraði, þannig að þeim ljúki öllum á sama tíma dags.
- Frítt í sund og froðupartý í pottinum.
Hvar sérð þú Múlaþing eftir fjögur ár?
Framkvæmdir við Fjarðarheiðargöng verða hafnar
Knattspyrnuhús verður í byggingu á Egilsstöðum,
Nýr skóli á Seyðisfirði verður risinn.
Leikskólinn í Brúarási verður opinn allan daginn og á ársgrundvelli.
Vistunartími nemenda í leikskólum verður skilgreindur út frá kennslu annars vegar og dagvistun hins vegar.
Börn úr dreifbýlinu sem stunda nám í leik- og grunnskólum fá öll skólaakstur.
Topp fimm:
Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi:
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Uppáhalds lið í enska:
Uppeldið kenndi mér að það væri Man.United
Uppáhalds sjónvarpsþáttur:
Allt læknadrama rennur ljúft í gegn.
Uppáhalds hljómsveit / tónlistarmaður:
Ég er frekar mikil alæta á tónlist og hlusta mest á Rás 1 og Rás 2 og í því tilliti eru mínir uppáhalds tónlistarmenn; KK í Á reki með KK á Rás 1 og Andri Freyr Viðarsson í Morgunverkunum á Rás 2.
Uppáhalds staður í Múlaþingi:
Borgarfjörður eystri


