Landsstjórn samþykkir viðmiðunarreglur vegna sveitar- og borgarstjórnarkosninga

Notifications

Landsstjórn Framsóknar hefur samþykkt samræmdar viðmiðunarreglur um val á framboðslista sem gilda um alla valkosti í öllum sveitarfélögum. Kjördæmaþing, fulltrúaráð eða félagsfundur í hverju sveitarfélagi tekur ákvörðun um aðferð við röðun á lista.

Fjórar leiðir í boði við val frambjóðenda

Sveitarfélög geta valið eina af eftirfarandi aðferðum við val á frambjóðendum: a) rafræn kosning, b) lokað prófkjör, c) uppstilling og d) opið prófkjör. Jafnframt var samþykkt að Kjördæmasambandið í Reykjavík gæti viðhaft tvöfalt kjördæmaþing við val á frambjóðendum.

Viðmiðunarreglur

Lokað prófkjör vegna sveitarstjórnarkosninga

Hlaða niður

Viðmiðunarreglur

Opið prófkjör vegna sveitarstjórnarkosninga

Hlaða niður

Viðmiðunarreglur

Uppstilling fyrir sveitarstjórnarkosningar

Hlaða niður

Viðmiðunarreglur

Rafræn kosning fyrir sveitarstjórnarkosningar

Hlaða niður

Viðmiðunarreglur

Tvöfalt kjördæmaþing fyrir borgarstjórnarkosningar

Hlaða niður

Aðildarfélög í viðkomandi sveitarfélagi bera ábyrgð á framboði til sveitarstjórnar, ákveða aðferð við val frambjóðenda, sjá um framkvæmd valsins og ganga frá framboðslista. Ef framboð er í samstarfi við aðra flokka eða samtök setur fulltrúaráð/félagsfundur framsóknarfélags reglur um framkvæmd slíks samstarfs.

Landsstjórn samþykkt að ekki skulu vera fleiri en þrír af sama kyni í 5 efstu sætum framboðslistans. Jafnframt gildir að framboðslisti skuli hlutur hvors kyns ekki vera lægri en 40%, nema þegar gagnsæjar og augljósar ástæður eru því til fyrirstöðu.

Kjörskrá lokar 30 dögum fyrir valdag og framboðsfrestur rennur út 15 dögum fyrir valdag.

Hagnýtar upplýsingar vegna framboðsleiðanna:

  • Aðferð við val: rafræn kosning, lokað prófkjör, uppstilling eða opið prófkjör. Tvöfallt kjördæmaþing er heimilt að viðhafa í Reykjavík.

  • Valdagur: dagsetning kosningar í efsta eða efstu sæti.

  • Kjörskrá lokar: 30 dögum fyrir valdag.

  • Framboðsfrestur rennur út: 15 dögum fyrir valdag.