Lýðheilsa – lykill að betri lífsgæðum

Branches

Lýðheilsa snýst um lífsgæði fólks á öllum aldri. Hún snýst um að skapa samfélag þar sem íbúar hafa raunveruleg tækifæri til að hreyfa sig, njóta útivistar og tileinka sér heilbrigðan lífsstíl sem styrkir bæði líkama og huga.

Alla tíð hef ég lagt mikla áherslu á heilbrigðan lífsstíl og íþróttir hafa skipað stóran sess í lífi mínu frá unga aldri. Ég trúi því að hreyfing og tækifæri til að stunda íþróttir við hæfi eigi að vera á allra færi, óháð efnahag eða aðstæðum. Ég er fyrrverandi afreksíþróttamaður í skíðagöngu og hef meðal annars keppt á Ólympíuleikum fyrir hönd Íslands. Ég hef einnig starfað við þjálfun og vinn í dag á vettvangi sem tengist útivist og hreyfingu. Í gegnum þessa reynslu hef ég séð hversu mikil áhrif regluleg hreyfing og gott aðgengi að aðstöðu hefur á heilsu og vellíðan fólks.

Það er sérstaklega mikilvægt að börn og ungmenni fái tækifæri til að stunda íþróttir og hreyfingu við sitt hæfi. Þar er ekki aðeins verið að leggja grunn að betri líkamlegri heilsu, heldur einnig að sterkari sjálfsmynd, betri andlegri líðan og góðum venjum sem geta fylgt fólki alla ævi. Við eigum að tryggja að þessi tækifæri séu aðgengileg öllum. Í Mosfellsbæ eru miklir möguleikar til staðar. Hér höfum við umhverfi sem býður upp á fjölbreytta hreyfingu og útivist, og mikilvægt er að halda áfram að byggja á þeim styrkleikum. Gott stíganet, göngu- og hjólaleiðir, aðstaða til útiveru og gönguskíðaspor yfir veturinn þegar aðstæður leyfa skipta sköpum í daglegu lífi fólks. Einnig gefst tækifæri til að stunda fjölbreyttar íþróttagreinar utandyra, svo sem hlaup, hjólreiðar, skíðagöngu, hestaíþróttir og motocross, sem endurspeglar vel þann styrk sem felst í nánd við náttúruna. Sundlaugarnar gegna jafnframt lykilhlutverki og eru mikilvægur vettvangur fyrir heilsueflingu, endurheimt og samveru fyrir alla aldurshópa.

Uppbygging til framtíðar

Íþróttafélögin í Mosfellsbæ gegna afar mikilvægu hlutverki. Þar fer fram öflugt starf sem styrkir börn, ungmenni og fjölskyldur og skapar jákvætt samfélag. Það starf þarf áfram að styðja eins vel og kostur er, enda er það ein af undirstöðum góðrar lýðheilsu í bæjarfélaginu. Um leið þurfum við að horfa á lýðheilsu í víðara samhengi sem snýst einnig um daglega hreyfingu, gott nærumhverfi og að fólk á öllum æviskeiðum hafi raunhæf tækifæri til að lifa virku lífi.

Við í Framsókn viljum halda áfram að sinna vel aðstöðumálum tengdum íþróttum og vinna áfram að uppbyggingu, þar á meðal á Varmársvæðinu.

Áhersla á lýðheilsu er fjárfesting í betra samfélagi. Með því aukum við vellíðan, drögum úr heilsufarslegum áskorunum og styrkjum samfélagið í heild.

Eflum áfram lýðheilsu í Mosfellsbæ.

Sævar Birgisson
Bæjarfulltrúi og oddviti Framsóknar í Mosfellsbæ

Greinin birtist fyrst á mosfellingur.is 23. apríl 2026