Nýtt framboð: Framsókn og félagshyggjufólk í Grundarfirði

Notifications

Ákveðið hefur verið að bjóða fram undir merkjum Framsóknar og félagshyggjufólks í Grundarfirði.

Samstaða Listi fólksins rennur í ár saman við framboð Framsóknar og myndar nýjan framboðslista til sveitarstjórnarkosninga sem haldnar verða 16.maí í ár.

Gaman er að geta þess að Framsóknarfélag Grundarfjarðar bauð síðast fram lista árið 2002, fyrir 24 árum síðan.

Framboðslistann skipa:

1. Fannar Þór Þorfinnsson

2. Signý Gunnarsdóttir

3. Aðalsteinn Jósepsson

4. Þuríður Gía Jóhannesdóttir

5. Eiríkur Þór Halldórsson

6. Halldóra Dögg Hjörleifsdóttir

7. Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir

8. Rakel Birgisdóttir

9. Sigurborg Knarran Ólafsdóttir

10. Anna Júlía Skúladóttir

11. Hallur Pálsson

12. Kristján Guðmundsson

13. Loftur Árni Björgvinsson

14. Guðni E. Hallgrímsson