
Við okkur blasir alvöru áfall í heimsbúskapnum, sem er líklega meira en fólk gerir sér almennt grein fyrir,“ sagði Christine Lagarde í viðtali við tímaritið Economist í fyrradag. Í framhaldinu sagði hún að markaðir væru líklega of bjartsýnir og væru að reiða sig á að orkumarkaðir heimsins kæmust fljótt í fyrra horf. Lagarde fylgdi þessu eftir og sagði að sérfræðingar væru að meta stöðuna þannig að búið væri að eyðileggja orkuinnviði í Mið-Austurlöndum það mikið, að það tæki mögulega mörg ár að framleiðslugetan kæmist á sama stað og hún var fyrir tæpum mánuði!
Öll heimsbyggðin finnur fyrir þessari þróun á eigin skinni. Ef þú býrð í Suður-Kóreu, þá hefur ríkisstjórnin beint því til fólks að stytta sturtuferðirnar og nota þvottavélina aðeins um helgar. Í Nepal þurfa fjölskyldur að borða kaldan kvöldverð vegna skorts á eldunargasi. Í Laos eru yfir 40 prósent bensínstöðva lokuð. Opinberum starfsmönnum í Taílandi hefur verið sagt að ganga upp stigana í stað þess að nota lyftur. Ríki veraldarinnar hafa orðið fyrir áhrifum af hækkun olíuverðs í kjölfar stríðsins í Íran.
Rétt er að staldra við og átta sig á umfangi þessa efnahagsáfalls fyrir heimsbúskapinn. Í síðustu viku sagði forstjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar við Financial Times að stríðið í Íran væri ein mesta ógn við orkuöryggi í sögunni. Hann sagði að meira magn af olíu hefði horfið af mörkuðum en í olíukreppunum 1973 og 1979.
Ein allra mikilvægasta auðlind Íslands er orkan sem verður til úr fallvötnum landsins og jarðvarma. Þessi auðlind hefur ekki aðeins gert okkur kleift að byggja upp nútímalegt samfélag, heldur hefur hún einnig skapað grunn að betri lífskjörum, sterkari innviðum og aukinni samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Ódýr og örugg orka hefur stutt við heimilin og gert Íslandi kleift að byggja upp samfélag þar sem lífsgæði eru meðal þeirra mestu sem þekkjast. Ísland er í fyrsta sæti á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna. Þetta er ekki sjálfgefið. Í veröld þar sem afar erfitt er að tryggja orkuöryggi þjóða og samkeppni um auðlindir vex sífellt, skiptir öllu máli að Ísland hafi full yfirráð yfir sínum auðlindum. Orkuauðlindir okkar eru sérstaklega eftirsóttar vegna þess að þær eru endurnýjanlegar. Það hefur aldrei verið jafn brýnt að tryggja að orkan okkar nýtist fyrir Ísland. Við sjáum hversu hverful alþjóðamálin eru þessa dagana og því skiptir öllu að halda sjó.
Gleymum því ekki að við höfum auðlindir þjóðarinnar aðeins að láni í takmarkaðan tíma, það er okkar að tryggja greitt aðgengi framtíðarkynslóða þjóðarinnar.
Aðild að Evrópusambandinu er ekki leiðin til að tryggja orkuöryggi Íslands til framtíðar.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 28. mars 2026



