Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi

Framsóknarflokkurinn í Kópavogi kynnir nú framboðslista  sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara þann 16. maí næstkomandi. Orri Hlöðversson, stjórnarformaður Frumherja hf. og bæjarfulltrúi  verður áfram oddviti listans og annað sætið skipar Björg Baldursdóttir, skólastjóri og bæjarfulltrúi. Þriðja sætið skipar Gunnar Sær Ragnarsson, lögfræðingur og það fjórða skipar Svava H. Friðgeirsdóttir skjalastjóri. Í fimmta og sjötta sæti eru síðan Heiðdís Geirsdóttir, félagsfræðingur og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, forstöðumaður og knattspyrnuþjálfari.

 Á listanum eru:

  1. Orri V. Hlöðversson - Framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi

  2. Björg Baldursdóttir - Grunnskólastjóri og bæjarfulltrúi

  3. Gunnar Sær Ragnarsson - Lögfræðingur

  4. Svava H Friðgeirsdóttir - Skjalastjóri

  5. Heiðdís Geirsdóttir - Félagsfræðingur

  6. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir - Forstöðumaður

  7. Bergrún Ósk Ólafsdóttir - Hönnuður

  8. Sveinn Gíslason - Rekstrarhagfræðingur

  9. Stefán Atli Rúnarson - Ráðgjafi

  10. Haukur Thors Einarsson - Sálfræðingur

  11. Atli Ársælsson - Nemi

  12. Kristinn Dagur Gissurarson - Viðskiptafræðingur

  13. Guðrún S. Viggósdóttir - Fv. hjúkrunardeildarstjóri

  14. Atli Ómarsson - Viðskiptafræðingur

  15. Þórunn K. Matthíasdóttir - Kennslufræðingur og eldri borgari

  16. Baldur Þór Baldvinsson - Eldri borgari og húsasmíðameistari

  17. Díana Íva Gunnarsdóttir - Stílisti

  18. Einar Gunnar Bollason - Íþróttakennari

  19. Margrét Sigmundsdóttir - Lífsþjálfi

  20. Sigrún Hulda Jónsdóttir - Deildarstjóri

  21. Willum Þór Þórsson - Forseti ÍSÍ, fv. ráðherra og þingmaður

  22. Birkir Jón Jónsson - Fv. bæjarfulltrúi og fyrrv. alþingismaður

Listinn er vel skipaður að mati Orra Hlöðverssonar, oddvita listans. „Hér er saman kominn þéttur og góður hópur fólks með fjölbreyttan bakgrunn og mikla reynslu. Nú tekur við vinna við að koma á framfæri við kjósendur okkar góðu verkum undanfarin ár“ segir Orri en Framsókn hefur átt aðild að meirihluta bæjarstjórnar á því kjörtímabili sem nú er að líða. Þar er að nógu að taka að sögn Orra. „Vil ég þar sérstaklega nefna þétt og gott aðhald á rekstri bæjarins, uppbyggingu íþróttamannvirkja, einbeitta stefnu í skólamálum, öfluga velferðarþjónustu, umbætur og kraft i menningarmálum að ógleymdu Kópavogsmódelinu í leikskólamálum“.

Framsókn í Kópavogi fékk tvo fulltrúa af 11 í bæjarstjórn í síðustu sveitarstjórnarkosningum árið 2022