Páskakveðja frá forystu Framsóknar

Branches

Þegar vorið er að ganga í garð og sólin hækkar á lofti, minnir það okkur á að nýr tími færir okkur ný tækifæri. Það er einmitt á slíkum tímamótum sem þrautseigja, samstaða og trú á verkefnið skipta mestu máli. Fólkið í Framsókn hefur bæði sýnina og kraftinn til að leggja fram raunhæfar lausnir í þágu heimilanna, atvinnulífsins og landsins alls — og við erum sannfærð um að erindi flokksins muni styrkjast og endurnýjast á komandi vikum og mánuðum.

Eftir aðeins 41 dag ganga landsmenn að kjörborðinu í sveitarstjórnarkosningum, og víða um land hafa öflugir xB-listar litið dagsins ljós. Alls mun Framsókn bjóða fram á 26 stöðum vítt og breitt um landið. Við höfum sterkan grunn, mikið traust og afar öflugt fólk. Sú staða er dýrmæt og hana þurfum við að nýta vel til að efla flokkinn frekar og byggja upp til framtíðar. Við erum full bjartsýni á að árangurinn í sveitarstjórnarkosningunum verði góður. Á listunum okkar er framúrskarandi fólk, öflugir oddvitar og sífellt fleiri ný andlit sem stíga fram og leggja hönd á plóg. Það er merki um lifandi grasrót, vaxandi kraft og bjarta framtíð. En góður árangur kemur ekki af sjálfu sér. Eins og vorið kallar fram nýtt líf, þá kallar þessi tími á það að við virkjum fólkið í kringum okkur, stöndum saman og leggjum okkar af mörkum. Verkefnið verður krefjandi — en einmitt þess vegna verður sigurinn enn sætari þegar við náum honum saman. Höldum því ótrauð áfram, með von í hjarta, vor í lofti og hækkandi sól.

Gleðilega páska!

Lilja Dögg, Stefán Vagn og Lilja Rannveig