Spennandi tímar fram undan
Branches

Sveitarstjórnarkosningarnar marka mikilvæg tímamót fyrir Framsókn um land allt. Fyrst og fremst vil ég færa öllum frambjóðendum flokksins, sjálfboðaliðum og stuðningsfólki innilegar þakkir fyrir einstaka vinnusemi, kraft og samheldni í þessari kosningabaráttu.
Árangurinn verður ekki til af sjálfu sér. Hann byggist á fólki sem leggur hjarta sitt í verkefnið og vinnur af trú á betra samfélag. Það er sannarlega ástæða til að vera stolt af þeirri öflugu liðsheild sem Framsókn hefur byggt upp víðs vegar um landið.
Í fyrsta lagi sýna úrslitin skýrt að Framsókn heldur stöðu sinni sem næststærsta stjórnmálaaflið eða með 55 fulltrúa. Kjósendur hafa sent skýr skilaboð um að þeir vilja áframhaldandi uppbyggingu, ábyrgð og samvinnu. Við sjáum aukið traust í fjölmörgum sveitarfélögum þar sem fólk treystir Framsókn til að leiða verkefni sem skipta heimilin, atvinnulífið og framtíð byggðanna máli. Sá árangur er afrakstur skýrrar stefnu og mikillar vinnu á vettvangi sveitarstjórna.
Í öðru lagi er ljóst að stefna Framsóknar nær til fólks. Áhersla okkar á samvinnu, sterka innviði, menntun og öflugt atvinnulíf á erindi við kjósendur. Kjósendur vilja lausnamiðað stjórnmálaafl sem vinnur með samfélaginu en ekki gegn því. Framsókn hefur sýnt að hægt er að sameina ólík sjónarmið og ná raunhæfum niðurstöðum sem gagnast heildinni.
Fram undan eru spennandi tímar. Nú eru meirihlutar að myndast vítt og breitt um landið og víða mun Framsókn gegna lykilhlutverki í að móta framtíð sveitarfélaga. Flokkurinn er greinilega á uppleið og krafturinn innan hans hefur sjaldan verið meiri. Með áframhaldandi samvinnu, metnaði og trú á samfélagið mun Framsókn halda áfram að rísa og vinna að sterkari sveitarfélögum um allt land.

