Stefán Vagn er nýr þingflokksformaður Framsóknar

Notifications

Stefán Vagn Stefánsson er nýr þingflokksformaður Framsóknar. 

Tillaga þess efnis var samþykkt á þingflokksfundi flokksins í Smiðju 11. mars 2026.

Stefán Vagn er oddviti Framsóknar í Norðvesturkjördæmi og hefur gegnt embætti varaþingflokksformans á kjörtímabilinu. Stefán  hefur setið á Alþingi frá árinu 2021.

Hann hefur verið formaður fjárlaganefndar og atvinnuveganefndar á Alþingi ásamt því að hafa víðtæka reynslu úr stjórnum og nefndum. Hann var varaþingmaður frá 2017 og oddviti Framsóknar í Skagafirði frá 2010 til 2022.

Hann var kjörinn varaformaður Framsóknar á flokksþingi 15. febrúar s.l..

Á þingflokksfundinum var einnig samþykkt að Þórarinn Ingi Pétursson, alþingismaður fyrir Norðausturkjördæmi, yrði varaþingflokksformaður. 

„Ég þakka traustið sem þingflokkur Framsóknar sýnir mér. Framundan eru krefjandi tímar í þinginu þar sem mörg stór mál bíða afgreiðslu og má þar einna helst nefna aðildarumsókn íslands að Evrópusambandinu, samgönguáætlun og fjármálaáætlun.

Á sama tíma og þingflokkurinn mun leggja sig allan fram við að styðja við sveitarstjórnarfulltrúa og framboð Framsóknar í komandi sveitarstjórnarkosningum. Ég vil einnig þakka Ingibjörgu Isaksen fyrir sína vinnu síðustu ár í embætti þingflokksformanns Framsóknar,” segir Stefán Vagn.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress